Alls eru 89 mál skráð í kerfi lögreglu og tveir vistaðir í fangageymslu. Þá barst lögreglu einnig tilkynning um umferðarslys í hverfi 110 í Reykjavík. Ekki urðu þar slys á fólki og var málið afgreitt á vettvangi.
Þá var einn handtekinn í annarlegu ástandi í miðborginni eftir að tilkynning barst lögreglu um þjófnað í fyrirtæki. Sá var vistaður í fangageymslu. Þar að auki var tilkynnt um þjófnað í verslun í hverfi 110 í Reykjavík og var málið afgreitt á staðnum.
Þá hafði lögregla afskipti af sex ökumönnum, tveimur fyrir að tala í síma undir stýri og tveimur vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna en við skoðun kom í ljós að báðir höfðu einnig verið sviptir ökuréttindum. Þar að auki var einn stöðvaður í akstri og reyndist hann einnig hafa verið sviptur ökuréttindum.