Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er nýkomin heim af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hún flutti ræðu sem vakti talsverða athygli á heimsvísu. Hún var gestur í Silfri kvöldsins.
Þorgerður segir að sér hafi fundist tími til vera kominn til þess að tala skýrar og af meiri ákveðni um ástand alþjóðakerfisins. Í ræðu sinni beindi hún spjótum sínum sérstaklega að Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
„Það er búið að skrifa undir friðarplan, Sameinuðu þjóðirnar eru búnar að samþykkja ákveðna áætlun en samt er það þannig að það er verið að drepa börn og verið er að koma í veg fyrir að mannúðaraðstoð komi inn á svæðið.“
Aðrir þjóðarleiðtogar hugleiknir
Þorgerður segir ákveðna tíma vera uppi í alþjóðamálum þar sem raddir þjóða sem láti gildi á borð við lýðræði, frelsi og mannréttindi sig varða skipti máli. Mikilvægt sé að beita röddinni og henni hafi þótt rétt að nýta þennan mikilvæga vettvang Sameinuðu þjóðanna og allsherjarþingsins til þess að láta í sér heyra.
Þó að spjótum Þorgerðar hafi einkum verið beint að Netanjahú segist hún þá einnig hafa verið að tala til annarra leiðtoga.
„Ég hafði líka vissulega aðra þjóðarleiðtoga í huga sem að til að mynda neita að setjast niður með Úkraínu og semja um réttlátan og varanlegan frið.“
Þrátt fyrir að Ísland sé ekki stór þjóð segir Þorgerður hana þó hafa rödd þegar kemur að mannréttindum og ákveðnum „prinsipp-málum“. Hún hafi einfaldlega verið að fylgja þeirri stefnu eftir.
Seta ekki það sama og samþykki
Það vakti athygli að fulltrúi Íslands sat sem fastast undir ræðu Netanjahús á meðan margar aðrar þjóðir yfirgáfu salinn. Þorgerður segir að langflestar Evrópuþjóðir hafi verið eftir í salnum.
„Er seta sama og samþykki við því sem sagt er? Nei, alls ekki. En við teljum rétt að fylgjast með því sem sagt er.“
Þorgerður segir það fullljóst að það hrikti í stoðum alþjóðakerfisins, það hafi vel fundist á fundinum. Þá sé mikilvægt fyrir þjóðir að reyna að ýta á samtöl þjóða sem séu að þverskallast og koma í veg fyrir að friðarsamningar náist.
„Við erum að sjá hörmungarnar á Gasa. Ofbeldi á Vesturbakkanum sem að á endanum er að koma í veg fyrir að við náum að framfylgja þeirri sýn og stefnu sem að Ísland hefur meðal annars sýnt fram á og það eru tveggja ríkja lausnir.“
Þorgerður nefnir sömuleiðis ástandið í Úkraínu og Súdan og segir það vera hugleysi þegar þjóðarleiðtogar taki sig ekki saman og komi að samningaborðinu.
„Mér finnst það bara hörmulegt og hugleysi þegar leiðtogar þjóða treysta sér ekki að samningaborðinu, treysta sér ekki í það að fylgja mannúðarlögum og verja alþjóðakerfið.“