Prófessor í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík, Gunnar Þór Pétursson, segir að hæstaréttardómur sem féll í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur taugalæknis leiði af sér að frumvarp um bókun 35 verði samþykkt á Alþingi og innleitt með réttum hætti í íslensk lög. Gunnar Þór telur því að óþarft að deilan bókun 35 fari fyrir EFTA-dómstólinn þar sem Hæstiréttur Íslands sé búinn að lýsa því að innleiða þurfi bókun 35 betur í íslensk lög. Í bókun 35 felst sú meginregla að reglur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) hafi forgang á íslensk lög á Íslandi nema að Alþingi hafi ákveðið sérstaklega undanþágur í einstaka tilfellum.
Orðrétt segir Gunnar Þór um þetta: „Ég sé nú ekki í sjálfu sér hvað yrði unnið með því [að EFTA-dómstóllinn taki málið fyrir]. Hæstiréttur er búinn að kveða úr um það að bókunin sé ekki nægilega vel innleidd í íslenskan rétt. Mér fyndist það í raun eðlilegast að við fylgdum þeirri niðurstöðu. Mér finnst í raun útilokað að EFTA-dómstóllinn segi eitthvað annað.“
Í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur sem Gunnar Þór ræðir reyndi á innleiðingu bókunar 35 i íslenskan rétt þar sem gengið var á rétt hennar á Íslandi til fæðingarorlofsgreiðslna sem hún hafði aflað sér réttinda til sem starfandi læknir í Danmörku. Fæðingarorlofssjóður á Íslandi vildi hins vegar ekki greiða henni þessar tekjutengdu fæðingarorlofsgreiðslur sem byggðu á launum hennar í Danmörku. Þess vegna fékk hún lægri fæðingarorlofsgreiðslur á Íslandi en hún hefði átt að fá, tæplega 3 milljónir króna. Hæstiréttur dæmdi Önnu Bryndísi skaðabætur upp á þessa upphæð, auk dráttarvaxta, sem íslenska ríkið þarf að greiða henni út af þessu. Ástæðan er sú að íslenska ríkið innleiddi ekki reglur EES-samningsins, meðal annars bókun 35, með fullnægjandi hætti í íslensk lög.
Rætt er við Gunnar Þór Pétursson og þingkonuna Sigríði Andersen í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Sigríður Andersen og gagnrýnin á bókun 35
Bókun 35 hefur verið langvinnt þrætuepli í íslenskum stjórnmálum. Búið er að leggja fram frumvarp um bókun 35 þrisvar sinnum á Alþingi á síðustu árum.
Í síðustu viku lagði utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, frumvarpið fram aftur og er það þá í fjórða sinn sem það er lagt fram á síðustu árum.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur hótað að fara með mál Íslands og þennan skort á réttri innleiðingu bókunar 35 fyrir EFTA-dómstóllinn. Nú síðast í byrjun september sagði fréttastofa frá því að slíkt dómsmál væri í uppsiglingu. Þetta eru hin mögulegu málaferli út af bókun 35 sem Gunnar Þór vísar til í orðum sínum.
Einn af þeim þingmönnum sem hefur tjáð sig hvað mest um bókun 35 á Alþingi er Sigríður Andersen, þingkona Miðflokksins. Hún ætlar að berjast gegn henni. „Við leggjumst gegn þessari lagabreytingu og við gerum það með vísan til þeirra ræða sem við héldum um málið á síðasta kjörtímabili,“ segir þingkonan og vísar meðal annars til þess að með bókun 35 muni fullveldi þjóðarinnar að einhverju leyti verða framselt til Evrópusambandsins.
Baráttan um bókun 35 er því alls ekki á enda á Alþingi þó svo að Hæstiréttur Íslands hafi tjáð sig með skýrum hætti um bókunina samkvæmt Gunnari Þór Péturssyni.