Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær áætlanir um byggingu stálverksmiðju í Iowa. Bandaríkjaforseti segir að þetta verði stærsta stálverksmiðja Bandaríkjanna nokkurn tímann.
Fyrirtækið Mesabi Metallics reisir verksmiðjuna og er framkvæmdin metin á 15 milljarða dollara. Málmgrýti verður unnið úr nýrri námu fyrirtækisins í Minnesota sem er fyrsta slíka náman í Bandaríkjunum í fimmtíu ár.
Þingkosningar verða í nóvember og Iowa er mikilvægt fylki fyrir Repúblikana. Vonir eru bundnar við að þessi tilkynning um stálverksmiðjuna sendi jákvæð skilaboð til kjósenda Repúblikana í ljósi vaxandi reiði kjósenda vegna hækkandi framfærslukostnaðar og stríðsins við Íran.