Einn mesti ævintýramaður Breta á síðustu öld finnst hvergi. Fjölskylda hans og aðdáendur segja í viðtölum við breska fjölmiðla að þau hafi hvorki náð að hitta Sir Ranulph Fiennes né tala við hann síðustu mánuði. Það sé eins og hann hafi horfið af yfirborði jarðar.
Svo virðist sem deilur innan fjölskyldunnar hafi orðið til þess að eiginkona Fiennes, Louise Millington-Cotes, haldi fjölskyldu og vinum frá landkönnuðinum síðustu mánuði. Fiennes greindi frá því fyrir rúmlega tveimur árum að hann væri með parkinsons.
Fiennes er ef til vill frægasti ævintýramaður Bretlands síðustu áratugina. Hann varð fyrsti maðurinn til að ganga bæði á Norðurpólinn og Suðurpólinn. Heimsmetabók Guinness lýsti honum á sínum tíma sem merkasta núlifandi landkönnuði veraldar. 65 ára varð Fiennes elsti Bretinn til að ganga á topp Everest.
Fjölskylda og vinir Fiennes hafa reynt að ná sambandi við hann án árangurs. Alexander Millington-Cotes, stjúpsonur Fiennes, hóf nýlega fjársöfnun fyrir lögmannskostnaði til að finna og vernda Fiennes. Stjúpsonurinn vill láta svipta móður sína valdi til að taka ákvarðanir fyrir hönd Fiennes.
Arabella Pepper, fyrrverandi mágkona Fiennes, sagði í viðtali við BBC að öll fjölskyldan vildi hitta hann en fengi ekki tækifæri til þess. Hún segist síðast hafa séð Fiennes í júlí í fyrra. Pepper segist hafa innritað sig á hjúkrunarheimili þar sem hún hafði heyrt að hann dveldi. Hún kvað Fiennes hafa glaðst og fundið fyrir létti við að sjá sig. Hann hefði óskað eftir að hitta aðra ættingja.
Í breskum fjölmiðlum hefur komið fram að vini og ættingja Fiennes gruni að seinni eiginkona Fiennes hafi innritað hann á nokkur hjúkrunarheimili undir fölsku nafni.
Um kvöldmatarleytið í gær greindi The Independent frá því að lögregla hefði veitt þau svör að Fiennes væri á öruggum stað. Það væri mat lögreglu að hann byggi við viðunandi aðstæður og þjónustu og ekkert hefði komið í ljós sem vekti grunsemdir. Lögregla er sögð hafa kannað aðstæður hans eftir að stjórnandi annars hjúkrunarheimilis sem Fiennes dvaldi á lýsti áhyggjum af því að Fiennes fengi ekki notið fullra réttinda sinna vegna afskipta annarra.
Karl konungur er einn þeirra sem hafa reynt að komast í samband við Fiennes, að því er fram kemur í breskum fjölmiðlum.