Kringlumýrarbraut var lokuð til suðurs vegna umferðaróhapps um tíma í kvöld. Vegfarendum var bent á að fara um merktar hjáleiðir og fara að með gát. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var vinnuvél ekið upp í Bústaðavegsbrú en málið er hjá lögreglu sem vinnur nú að því að tryggja vettvang slyssins. Samkvæmt frétt Vísis urðu engin slys á fólki.
Búið er að opna fyrir umferð samkvæmt upplýsingum á upplýsingasíðu Vegagerðarinnar.
Fréttin var uppfærð þegar Kringlumýrarbraut var opnuð að nýju.