Í frétt RÚV segir að tólf séu með réttarstöðu sakbornings hvað varðar manndráp af gáleysi. Greint var frá því í sumar að málið væri komið til ákærusviðs og að tíu væru með réttarstöðu sakbornings. Í frétt RÚV í gær segir að meðal þeirra séu Óskar Jósefsson forstjóri Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna.
Vísir greindi frá því í mars að rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hefði leitt í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum á Stuðlum, sem hefðu haft veruleg áhrif á öryggi og mannslíf.
„Á árunum fyrir eldsvoðann voru ítrekað gerðar kröfur um úrbætur á brunavörnum gagnvart Ríkiseignum, sem eiganda mannvirkisins. Kröfur um úrbætur voru bæði gerðar í kjölfar hefðbundins eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og við framkvæmd öryggis- og lokaúttekta byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Þrátt fyrir það voru nauðsynlegar úrbætur ekki gerðar,“ sagði í tilkynningu um skýrslu HMS.
Geir Örn var í neyðarvistun á Stuðlum þegar hann lést í eldsvoðanum en í skýrslunni sagði að ef brunavarnir hefðu verið virkar hefði verið hægt að koma í veg fyrir mannslát.