Ólgan í Sjálfstæðisflokknum heldur áfram. Undir yfirborðinu kraumar óánægja yfir því að fá ekki að stjórna landinu – eins og venjan hefur verið allt frá lýðveldisstofnun og jafnvel fyrr. Flokkurinn hefur verið við völd í 40 ár af síðustu 55 árum sem er meira en 70 prósent af þeim árafjölda. Þess vegna þarf ekki að koma á óvart þó að flokkurinn sætti sig illa við valdaleysi enda telja forystumenn hans að valdið sé eign hans á Íslandi. Á ÞAÐ – MÁ ÞAÐ. En við búum sem betur fer við lýðræðisfyrirkomulag og þess vegna er ekkert gefið hvað völdin varðar.
Orðið á götunni: Sótt að formannsembætti Guðrúnar – á hún að flýta landsfundi eða bíða fram á haust 2027?