„Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ - Vísir

„Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ - Vísir

„Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ - Vísir

Saga hennar endurspeglar stöðu tugþúsunda Íslendinga sem nota svefnlyf að staðaldri, þótt þau séu fyrst og fremst ætluð til skammtímanotkunar. Drífa vissi lítið um áhættuna sem getur fylgt lyfjunum meðan móðir hennar lifði en í dag leggur hún sitt af mörkum til að fræða aðra um hana.

Það hefur í raun ekki þótt neitt tiltökumál að vera á svefn- og slævandi lyfjum hér á landi í gegnum tíðina. Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af slíkum lyfjum. Landinn notaði til að mynda næstmest af svefn- og slævandi lyfjum af þeim OECD-ríkjum sem skiluðu samanburðarhæfum gögnum árið 2024.

Konur og aldraðir nota langmest

Samkvæmt upplýsingum frá Landlækni notuðu tæplega 25 þúsund manns svokölluð Z-svefnlyf, eins og Stilnoct og Imovane, eða önnur slævandi lyf á síðasta ári. Konur nota tæplega tvöfalt meira af svefnlyfjum en karlar og notkunin eykst með hækkandi aldri. Yfir þriðjungur 80 ára og eldri notaði slík lyf á síðasta ári.

Konur nota tvöfalt meira af svefnlyfjum en karlar og notkun þeirra vex eftir því sem fólk eldist. Heimild:LandlæknirVísir

Nokkuð hefur dregið úr notkun hefðbundinna svefn- og slævandi lyfja á síðustu árum en vísbendingar eru um að hluti notkunarinnar sé að færast yfir í aðra lyfjaflokka, meðal annars ofnæmis- og taugalyf sem eru þá einnig notuð vegna svefnvanda. Tvöfalt fleiri nota til dæmis ofnæmislyfið Atarax í dag en fyrir tíu árum og um helmingi fleiri Phenergan.

Endaði í hjólastól

Drífa Sigfúsdóttir segir að móðir hennar hafi notað svefnlyf í mörg ár og telur að notkunin hafi haft alvarlegar afleiðingar.

„Móðir mín átti við svefnleysi að stríða og var gefið svefntöflur í mörg ár. Lyfjagjöfin hélt áfram þegar hún fór á hjúkrunarheimili. Afleiðingarnar af því, vil ég meina, er að þar datt hún hvað eftir annað þegar hún var að fara fram úr á nóttunni með þeim afleiðingum að hún brotnaði oftar en einu sinni,“ segir Drífa.

Drífa hélt að móður sinni væri óhætt að taka svefnlyf en komst svo að raun um að þau geta verið skaðleg einkum fyrir eldra fólk.Vísir/Einar

Að lokum hafi aðstandendur og starfsfólk tekið þá erfiðu ákvörðun að móðir hennar skyldi fara í hjólastól til að koma í veg fyrir fleiri alvarlegar byltur. Það hafi reynst henni þungbært.

„Hún vildi alltaf standa upp,“ segir Drífa.

Móðir hennar hafi fram að því hreyft sig mikið og það hafi ekki átt við hana að sitja kyrr. Drífa segir að henni hafi liðið illa yfir því að sjá móður sína fasta í stólnum og að hún sé enn með samviskubit vegna þess.

„Ég hefði gjarnan viljað vita það sem ég veit núna. Þá hefði þetta kannski verið öðruvísi.“

„Það var bara aldrei minnst á það“

Það sem situr í Drífu er að enginn ræddi við fjölskylduna um hvort svefnlyfin gætu haft neikvæð áhrif á móður hennar.

„Það var bara aldrei minnst á það.“

Hún segir að á þessum tíma hafi hún sjálf vitað sáralítið um svefnlyf og talið að það mætti taka þau árum saman. Það breyttist þegar hún tók þátt í Sofðu vel, fræðsluverkefni um svefn og svefnlyf sem unnið var í samstarfi við Landssamband eldri borgara á síðasta ári. Drífa sem var var annar tveggja aðaltalsmanna verkefnisins fyrir hönd sambandsins. Eftir því sem hún kynnti sér málið varð saga móður hennar sífellt áleitnari.

Í átakinu komst hún meðal annars að því að lyf sem fólk hafði jafnvel tekið árum saman eru fyrst og fremst hugsuð sem skammtímalausn við svefnvanda. Þá getur notkun þeirra verið varasöm einkum fyrir eldra fólk og tengst slævingu, rugli, minnistruflunum, jafnvægisvanda og byltum.

„Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni,“ segir Drífa.

Undrandi og reið

Vitneskjan hafði mikil áhrif á Drífu. Hún segist hafa orðið undrandi og reið yfir því að hafa ekki vitað meira um mögulegar afleiðingar lyfjanna meðan móðir hennar var á lífi. Það varð drifkrafturinn að baki þátttöku hennar í Sofðu vel. Þegar formlega verkefninu lauk á síðasta ári ákvað Drífa að halda áfram.

Drífa er sjálfboðaliði í dag og flytur boðskapinn þar sem fólk vill hlusta.Vísir/Einar

„Eftir að ég fékk þessa þekkingu á málinu fannst mér rosalega mikilvægt að halda áfram. Þannig getum við lagað ástandið. Ég vil sjá árangur.“

Drífa hefur síðan haldið áfram að kynna áhrif og aukaverkanir svefnlyfja í sjálfboðavinnu. Hún hefur meðal annars kynnt efnið fyrir starfsfólki sem vinnur að öldrunarmálum á Landspítala og hyggst halda fyrirlestra fyrir eldri borgara og heilbrigðisstarfsfólk.

„Ég er til í að kynna þetta fyrir öllum sem vilja hlusta. Það er svo mikilvægt að fólk sé meðvitað um áhættuna af svefnlyfjanotkun,“ segir hún.

„Fólk verður hissa“

Viðbrögðin sem Drífa fær styrkja hana í þeirri trú að þörf sé á stöðugri fræðslu um mögulega skaðsemi svefnlyfja.

„Mér finnst flestir verða jafn hissa, eins og ég varð, þegar þeir heyra af mögulegum aukaverkunum. Mér finnst almennt að fólk viti ekki um afleiðingarnar," segir Drífa að lokum

Fræðslan hefur áhrif

Samkvæmt upplýsingum frá aðstandendum Sofðu vel var gerð könnun meðal rúmlega tvö þúsund eldri borgara eftir að átakinu lauk. Niðurstöðurnar voru að meðal þeirra sem höfðu kynnt sér fræðsluefnið og notað svefnlyf áður sagðist næstum helmingur hafa minnkað notkun eða hætt alveg að nota lyfin eftir að hafa kynnt sér efnið. Þá var fólk mun meðvitaðra um aukaverkanir og áhættu sem getur fylgt slíkum lyfjum.

Svefnlyfjaþjóðin

Í nýjum Kompás er kafað ofan í svefnlyfjanotkun Íslendinga og spurt hvað gerist þegar lyf sem eiga fyrst og fremst að vera skammtímalausn verða hluti af kvöldrútínu árum saman.

Rætt er við fólk sem hefur sjálft séð afleiðingar langtímanotkunar, íslenska og erlenda sérfræðinga og fólkið á bak við Sofðu vel. Skoðað er hvers vegna notkunin er svo mikil hér á landi, hvað rannsóknir segja um áhrifin þegar lyfin eru tekin til langs tíma og hvers vegna áhættan af ýmsum aukaverkunum eykst með aldrinum.

Þá er einnig skoðað hvort breyting sé að verða á því hvaða lyf eru notuð við svefnvanda – og hvort hluti notkunarinnar sé að færast frá hefðbundnum svefnlyfjum yfir í önnur slævandi lyf.

#henni #hjálpa #hélt #svefnlyfin #væru

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262940866d/-eg-helt-ad-svefnlyfin-vaeru-ad-hjalpa-henni-

📰 Aðrar fréttir

Reykjavíkurborg sögð hafa gengið of langt - Farið fram á víðtækar upplýsingar um líf fatlaðs fólks
📅 29.09.2026 👁️ 1
Reykjavíkurborg sögð hafa gengið of langt - Farið fram á víðtækar upplýsingar um líf fatlaðs fólks
Persónuvernd hefur sent frá sér álit um að áform Reykjavíkurborgar um að afla kvittana um kostnað við NPA-þjónustu fyrir fatlað fólk, frá öllum notend...
„Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 1
„Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki - Vísir
Kopaháfurinn birtist í þröngu síki í Busan, stærstu hafnarborg Suður-Kóreu, 18. september. Líffræðingar telja að háfurinn hafi elt bráð upp síkið en e...
South West Water fined almost £8m for sewage spills
📅 29.09.2026 👁️ 1
South West Water fined almost £8m for sewage spills
South West Water previously entered guilty pleas to pollution offences spanning six years.
Watch: Luxury units uncovered inside an Indonesian prison
📅 29.09.2026 👁️ 1
Watch: Luxury units uncovered inside an Indonesian prison
A surprise inspection at the prison revealed apartment-like units appearing to house inmates, equipped with televisions, a gym and fridges stocked wit...
Neitar að hafa orðið félaga sínum að bana á Kársnesi
📅 29.09.2026 👁️ 1
Neitar að hafa orðið félaga sínum að bana á Kársnesi
Aðalmeðferð í máli Georgios Ntentes, sem er ákærður fyrir bana vini sínum á heimili hans á Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra, er hafin í Héraðsdó...
Maricarmen fær að flytja aftur heim
📅 29.09.2026 👁️ 1
Maricarmen fær að flytja aftur heim
Lögmaður Maricarmen Abascal sem var borin út úr leiguíbúð sinni í Madríd í síðustu viku segir að hún fái að flytja aftur inn. Málið hefur vakið mikil ...
Met Police officer charged after BBC Charing Cross investigation
📅 29.09.2026 👁️ 1
Met Police officer charged after BBC Charing Cross investigation
The police watchdog began an investigation into alleged misconduct at Charing Cross police station in London as a result of a BBC Panorama investigati...
„Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 1
„Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ - Vísir
Rætt er við Gísla Ægi Ágútsson verta á Vegamótum á Bíldudal í Bítinu á Bylgjunni um málið. Hann birti myndband af akstri sínum frá Bíldudal í Arnarfir...
Öllum þjálfurum sagt upp störfum hjá Björk
📅 29.09.2026 👁️ 1
Öllum þjálfurum sagt upp störfum hjá Björk
Öllum ráðningarsamningum þjálfara hjá Fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði var sagt upp í gærkvöldi.Ástæðan er sögð vera slæm fjárhagsstaða félagsins....
San Miguel council plans to remove over 300 abandoned cars from its streets
📅 29.09.2026 👁️ 1
San Miguel council plans to remove over 300 abandoned cars from its streets
San Miguel de Abona Council has launched a new campaign aimed at removing around 300 abandoned vehicles from streets and public spaces across the muni...
Mesta verðbólga í tvö ár
📅 29.09.2026 👁️ 2
Mesta verðbólga í tvö ár
Verðbólga hækkaði fjórða mánuðinn í röð og er komin í 5,9 prósent. Hún hefur ekki verið hærri síðan í ágúst 2024.Mestu munaði um að verð á dísil hækka...
Aðal­með­ferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 1
Aðal­með­ferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi - Vísir
Georgios Ntentes, sem er 31 árs gamall, hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að hann var handtekinn öðru sinni 10. desember. Hann neitar að hafa ráðið...
Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 2
Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition - Vísir
Aron Can seldi upp á tíu ára bransaafmælistónleika í Laugardalshöll og heppnuðust tónleikarnir gríðarlega vel. Slíkum tímamótum þarf auðvitað að fagna...
Orðið á götunni: Sótt að formannsembætti Guðrúnar – á hún að flýta landsfundi eða bíða fram á haust 2027?
📅 29.09.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Sótt að formannsembætti Guðrúnar – á hún að flýta landsfundi eða bíða fram á haust 2027?
Ólgan í Sjálfstæðisflokknum heldur áfram. Undir yfirborðinu kraumar óánægja yfir því að fá ekki að stjórna landinu – eins og venjan hefur verið allt f...
„Dýr geta aug­ljós­lega ekki sjálf leitað réttar síns“ - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 2
„Dýr geta aug­ljós­lega ekki sjálf leitað réttar síns“ - Vísir
Í yfirlýsingu kalla samtökin eftir því að slík heimild verði tryggð í lögum og að heildarendurskoðun laga um velferð dýra sé nú til meðferðar hjá atvi...
Bitnar á Landspítalanum ef vandi SÁÁ er ekki leystur
📅 29.09.2026 👁️ 2
Bitnar á Landspítalanum ef vandi SÁÁ er ekki leystur
Forstjóri Sjúkratrygginga segir uppsögn framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ endurspegla þá erfiðu stöðu sem upp er komin. Hann hvetur þá sem geta til að...
'We don't know where he is': Relatives of Sir Ranulph Fiennes tell BBC
📅 29.09.2026 👁️ 2
'We don't know where he is': Relatives of Sir Ranulph Fiennes tell BBC
Speaking to BBC Newsnight, his former sister-in-law told the BBC that she did not know where he was, and nobody had been able to see him.
The expat travel calendar for the Canaries
📅 29.09.2026 👁️ 2
The expat travel calendar for the Canaries
Living in the Canary Islands most certainly changes the way you think about travel. A flight back to your home country becomes a family visit rather t...
Danskur stór­leikari þakk­látur á Ís­landi - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 2
Danskur stór­leikari þakk­látur á Ís­landi - Vísir
„Frídagur á Íslandi í gær. Ég er þakklátur fyrir að vera í þessu fallega landi og gera það sem ég elska með svo hæfileikaríku og vinnusömu fólki frá Í...
Danskur stór­leikari hvílir lúin bein á Ís­landi - Vísir

Segir upp eftir tvær vikur í starfi - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 2
Segir upp eftir tvær vikur í starfi - Vísir
Þetta staðfestir Jón í samtali við Ríkisútvarpið. Mikil ólga hefur ríkt innan SÁÁ undanfarna mánuði og hafa ýmsir stjórnendur sagt starfi sínu lausu o...
Organised crime investigation sees 17 arrested in dawn raids
📅 29.09.2026 👁️ 2
Organised crime investigation sees 17 arrested in dawn raids
Searches continue at a number of properties and there is expected to be an ongoing police presence.
Manstu eftir krúttlega stráknum úr Jerry Maguire? Snýr aftur í vægast sagt óvæntu hlutverki
📅 29.09.2026 👁️ 3
Manstu eftir krúttlega stráknum úr Jerry Maguire? Snýr aftur í vægast sagt óvæntu hlutverki
Jonathan Lipnicki, sem sló eftirminnilega í gegn aðeins sex ára gamall í stórmyndinni Jerry Maguire, snýr nú aftur á hvíta tjaldið í sínu stærsta kvik...
Finna ekki „merkasta núlifandi landkönnuð veraldar“
📅 29.09.2026 👁️ 3
Finna ekki „merkasta núlifandi landkönnuð veraldar“
Einn mesti ævintýramaður Breta á síðustu öld finnst hvergi. Fjölskylda hans og aðdáendur segja í viðtölum við breska fjölmiðla að þau hafi hvorki náð ...
Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Dan­merkur - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Dan­merkur - Vísir
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að tillagan banni í grundvallaratriðum ferðalög um svæðið á bensín- og díselbílum. Umhverfisstofnun Danm...
Norlén tekinn aftur við og boðar for­menn á fund - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Norlén tekinn aftur við og boðar for­menn á fund - Vísir
Norlén hefur gegnt embættinu frá árinu 2018 og var búist við því að nýr forseti tæki við í gær þar til Vinstri flokkurinn tilkynnti á sunnudagskvöld a...
Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna
📅 29.09.2026 👁️ 3
Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna
Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna Tvö lög­reglu­embætti hafa kraf­ið þrjá við­burð­ar­hald­ara um sam­an­lagt 47 millj­ón­ir vegna þri...
Fifa accuses Uefa of 'misinformation campaign'
📅 29.09.2026 👁️ 3
Fifa accuses Uefa of 'misinformation campaign'
Uefa's suggestions that Fifa president Gianni Infantino "violated any law or ethical principle are categorically without merit" says world football's ...
Five people including two children rescued after boat breaks down off Playa Blanca
📅 29.09.2026 👁️ 3
Five people including two children rescued after boat breaks down off Playa Blanca
Five people, including two children, have been rescued after their boat suffered engine failure and was left drifting off the coast of Playa Blanca in...
Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun - Vísir
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Á morgun miðvikudag er önnur lægð í farvatninu, heldur krappari og dýpri en lægð d...
Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? - Vísir
Eða eitthvað í vinnunni sem við treystum okkur einfaldlega betur til að gera vel miðað við aðra. Og svo framvegis. Oft finnst okkur jafnvel betra að g...
Björn Ingi segir afleiðingarnar fyrirsjáanlegar: „Hvenær fær hin skattpínda þjóð nóg?“
📅 29.09.2026 👁️ 3
Björn Ingi segir afleiðingarnar fyrirsjáanlegar: „Hvenær fær hin skattpínda þjóð nóg?“
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins, spyr hvenær hin skattpínda þjóð fái nóg nú þegar skattar á bensínjeppa eru orðnir hærri en ...
Baráttan um bókunina: „Ég sé nú ekki í sjálfu sér hvað yrði unnið með því“
📅 29.09.2026 👁️ 3
Baráttan um bókunina: „Ég sé nú ekki í sjálfu sér hvað yrði unnið með því“
Prófessor í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík, Gunnar Þór Pétursson, segir að hæstaréttardómur sem féll í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur taugalæknis...
Dómarnir og bókun 35: „Ég sé nú ekki í sjálfu sér hvað yrði unnið með því“

Hvasst og blautt
📅 29.09.2026 👁️ 3
Hvasst og blautt
Veðrið gerir lítið til að gleðja landsmenn í dag og á morgun. Stinningskaldi og allhvass vindur verða víða um land. Sunnlendingar og fólk á suðvesturh...
Guardia Civil officers rescue missing woman from sea in Tenerife
📅 29.09.2026 👁️ 3
Guardia Civil officers rescue missing woman from sea in Tenerife
Officers from Guardia Civil have been praised after rescuing a missing woman from the sea in Tenerife after she was found in the water during a night-...
Lives will be lost unless UK does more to combat wildfires, committee chairwoman says
📅 29.09.2026 👁️ 3
Lives will be lost unless UK does more to combat wildfires, committee chairwoman says
Baroness Brown says there must be better training and planning, after a record year for wildfires in England and Wales.
7.000 krónur á mælinum við BSÍ áður en farþegi sest upp í – Taxý Hönter böstar fleiri leigubílstjóra
📅 29.09.2026 👁️ 3
7.000 krónur á mælinum við BSÍ áður en farþegi sest upp í – Taxý Hönter böstar fleiri leigubílstjóra
Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, hefur birt myndband úr leigubílaröðinni við BSÍ. Á upptökunni er myndavélinni beint inn um glugga le...
Kallaði ráð­herra á fund vegna hand­töku mannanna við her­stöðina - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Kallaði ráð­herra á fund vegna hand­töku mannanna við her­stöðina - Vísir
Um var að ræða svonefndan COBRA-fund, þar sem ráðherrar, háttsettir embættismenn og aðrir lykilaðilar hittast til að samræma viðbrögð við alvarlegum a...
Sunshine and 30°C temperatures return across the Canary Islands
📅 29.09.2026 👁️ 3
Sunshine and 30°C temperatures return across the Canary Islands
Sunshine and temperatures of 30°C or higher are forecast across parts of the Canary Islands today as conditions become considerably more settled follo...
Tólf með réttar­stöðu sak­bornings vegna and­láts á Stuðlum - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Tólf með réttar­stöðu sak­bornings vegna and­láts á Stuðlum - Vísir
Í frétt RÚV segir að tólf séu með réttarstöðu sakbornings hvað varðar manndráp af gáleysi. Greint var frá því í sumar að málið væri komið til ákærusvi...
Vænta formlegs svars frá Bandaríkjastjórn í dag
📅 29.09.2026 👁️ 3
Vænta formlegs svars frá Bandaríkjastjórn í dag
Utanríkisráðherra Íran, Abbas Araghchi, segir að stjórnvöld í Íran búist við formlegu svari frá Bandaríkjastjórn í dag varðandi opnun Hormússunds. Íra...
Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi - Vísir
Í dagbók kemur einnig fram að óskað hafi verið eftir aðstoð lögreglu við að vísa einstaklingi á brott í 101 sem var óvelkominn og að tilkynnt hafi ver...
Setja viðskiptaþvinganir á Usmanov og Friedman
📅 29.09.2026 👁️ 3
Setja viðskiptaþvinganir á Usmanov og Friedman
Stjórnvöld í Litáen hafa sett rússnesku milljarðamæringana og ólígarkana Alisher Usmanov og Mikhail Friedman á lista yfir óæskilega einstaklinga, pers...
'Ship buster' missiles sink old US warship in live fire training off Scotland
📅 29.09.2026 👁️ 1
'Ship buster' missiles sink old US warship in live fire training off Scotland
The 43-year-old decommissioned frigate was used for target practice off the Outer Hebrides last Monday.
Family of British explorer Sir Ranulph Fiennes say they don't know where he is
📅 29.09.2026 👁️ 3
Family of British explorer Sir Ranulph Fiennes say they don't know where he is
It has been alleged that Sir Ranulph has been admitted to a number of care homes under assumed names.
Sir Ranulph Fiennes: Relatives tell BBC it's 'very painful' not being able to visit him

Pútín fjölgar hermönnum um 15.500
📅 29.09.2026 👁️ 3
Pútín fjölgar hermönnum um 15.500
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur undirritað forsetatilskipun um fjölgun í hernum um 15.500 hermenn. Þetta er í fjórða sinn sem fjölgað er í rússn...
US ban on Canadian alcohol and dairy comes into effect as trade war drags on
📅 29.09.2026 👁️ 3
US ban on Canadian alcohol and dairy comes into effect as trade war drags on
It is the latest escalation in the Canada-US trade war after negotiations collapsed in late August, with no word on when talks may resume.
Argentina threatens legal action against UK over Falkland Islands oil exploration
📅 29.09.2026 👁️ 3
Argentina threatens legal action against UK over Falkland Islands oil exploration
President Javier Milei set a two-week deadline for the Sea Lion oilfield project to be scrapped.