Forstjóri Sjúkratrygginga segir uppsögn framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ endurspegla þá erfiðu stöðu sem upp er komin. Hann hvetur þá sem geta til að hjálpa við að bæta úr stöðunni. Óskað hefur verið eftir aðstoð frá Landspítala og forstjóri Sjúkratrygginga segir það hagsmuni spítalans að starfsemi SÁÁ gangi.
„Þetta væntanlega endurspeglar það hversu erfitt þetta ástand er og hvað það er erfitt fyrir nýtt fólk að stíga inn í starfið við þessar aðstæður,“ segir Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, um uppsögn framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ.
Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, á fund með Baldvinu Ýr Hafsteinsdóttur, forstjóra SÁÁ í dag. Þar munu þau ræða hvort, og þá hvernig, Landspítalinn getur stigið inn í þær deilur sem hafa staðið um heilbrigðisstarfsemi SÁÁ undanfarnar vikur.
Jón Áki Jensson sagði starfi sínu lausu í gær eftir tvær vikur í starfi. Hann var ráðinn tímabundið í starfið eftir að Valgerður Rúnarsdóttir sagði upp vegna þess sem hún sagði afskipti stjórnar samtakanna að heilbrigðisstarfinu.
Fjöldi lækna á Vogi fór í veikindaleyfi eftir að formaður SÁÁ lýsti yfir trausti til stjórnarinnar og Vogur hefur getað sinnt um helmingi færri sjúklingum síðan.
Jón Áki, sem sagði upp störfum í gær, sagði í samtali við fréttastofu í gær að mönnunarvandinn væri slíkur að önnur stofnun þyrfti að stíga inn í. Í bréfi frá nýjum forstjóra SÁÁ til starfsfólks í gær kom fram aðsamtökin hefðu leitað til Landspítala eftir stuðningi við mönnun.
„Ég veit það hafa verið samtöl þarna á milli en þau eru bara í gangi ennþá og ég veit ekki um þá niðurstöðu,“ segir Sigurður.
„En það er náttúrulega alveg ljóst að ef þessi röskun heldur áfram og það verður ennþá frekari röskun þá mun hluti þess vanda sem kemur upp lenda á Landspítalanum. Þannig að það eru líka hagsmunir Landspítalans að þessi starfsemi gangi,“ segir Sigurður.
Sér ekki að frekari þvingunarúrræði hjálpi
SÁÁ starfar samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands og fljótlega var ákveðið að endurskoða samninginn með það að markmiði að tryggja skýr skil milli stjórnar félagasamtakanna og heilbrigðisþjónustunnar. Í viðtali við Morgunblaðið í morgun sagði Sigurður að í gildandi samningi væri ákvæði um að Sjúkratryggingar gætu krafið SÁÁ um úrbætur innan ákveðins tímafrests ef starfsemin væri ekki í samræmi við samninginn.
Sigurður segir að það komi til greina að beita ákvæðinu.
„En við erum í samtali við stjórnendur og við sjáum það að það eru allir að reyna sitt besta til að leysa úr þessari stöðu. Það er kannski erfittað sjá hvað frekari þvingunarúrræði af okkar hálfu myndi eitthvað hjálpa í þessari stöðu.“