Aron Can seldi upp á tíu ára bransaafmælistónleika í Laugardalshöll og heppnuðust tónleikarnir gríðarlega vel. Slíkum tímamótum þarf auðvitað að fagna með stæl sem hann og gerði. Margt var um manninn á ROOF-barnum á Edition-hótelinu í miðbæ Reykjavíkur þar sem boðið var upp á kokteila í anda Arons og Daði Ómars þeytti skífum.
Hér má sjá vel valdar myndir frá fjörinu sem Elísabet Blöndal tók: