Verðbólga hækkaði fjórða mánuðinn í röð og er komin í 5,9 prósent. Hún hefur ekki verið hærri síðan í ágúst 2024.
Mestu munaði um að verð á dísil hækkaði um 18,1 prósent og bensín um 16,1 prósent eftir að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti féll niður. Skattahækkunin er þó ekki eina ástæða þess að eldsneytisverð hækkar. Ef tímabundna skattalækkunin hefði haldið sér hefði dísill samt hækkað um 5,7 prósent og bensín um 3,9 prósent.
Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 11,7 prósent milli mánaða.
Verðbólga hefur verið yfir 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands allt frá því í maí 2020.