Aðalmeðferð í máli Georgios Ntentes, sem er ákærður fyrir bana vini sínum á heimili hans á Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra, er hafin í Héraðsdómi Reykjaness.
Honum er gefið að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.
Ntentes, sem er grískur, neitaði sök við upphaf aðalmeðferðar.
Í nóvember barst lögreglu tilkynning um meðvitundarlausan mann í íbúð á Kársnesi. Maðurinn, sem var Portúgali um fertugt, var látinn þegar lögregla kom á staðinn.
Hann var með fjölda stunguáverka og lögreglan virtist í fyrstu telja líklegt að hann hefði veitt sér áverkana sjálfur. Í desember var síðan grískur félagi hans handtekinn í tengslum við andlátið en þeir látni höfðu verið saman kvöldið sem andlátið bar að garði.
Karlmanninum var sleppt úr haldi þegar gæsluvarðhaldið rann út og tjáði lögregla fjölmiðlum að ekki væri talin ástæða til þess að krefjast áframhaldandi varðhalds.
Nýjar vendingar urðu svo til þess að maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald á nýjan leik.