Ríkisútvarpið vinnur nú að endurflutningi rómaðra útvarpsþátta hans, Orð skulu standa, en Illugi Jökulsson rithöfundur greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem hann ritar stutt minningarorð:
„Þess varð vart þegar hann dó á dögunum að margir vildu fá að heyra á ný hina frábæru útvarpsþætti sem hann hélt úti í mörg ár ásamt góðu fólki, Orð skulu standa, og það vill svo til að ég veit að fólk hjá Ríkisútvarpinu er einmitt núna að undirbúa endurflutning á þeim og verður af því fyrr en síðar. Það er þó eitthvað að hlakka til þótt við kveðjum hann sjálfan.“
Flóð minningarorða um Kalla féllu á samfélagsmiðlum í kjölfar andlátsfregnar og tók Vísir saman það helsta sem til féll.
Í Morgunblaðinu í dag má sjá fjölda minningargreina. Meðal annarra ritar Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis grein þar sem hún minnist Kalla:
„Kalli var sérvitur og sjarmerandi, hrifnæmur og viðkvæmur. Hann reyndi auðvitað að fela það á bak við brynju kúlsins en tókst það sjaldnast. Fíknin markaði líf hans djúpum sporum og síðasta áratuginn stjórnaði hún ferðinni. Hann missti föður sinn á unglingsaldri og frásögn hans af þeim missi nístir inn að beini. Kalli var miðbæjarrotta sem leitaði reglulega í heimahagana austur á fjörðum. Bjó um tíma á Stöðvarfirði og ritstýrði góðu héraðsblaði,“ skrifar Þórunn.
Annar sem ritar um Karl er Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri sem meðal annars rifjar upp að hann hafi á sínum tíma, einn manna í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar, lagst gegn því að Karl yrði ráðinn framkvæmdastjóri hreyfingarinnar. Þetta reyndist upphaf ævilangrar vináttu og stýrði Kalli fræknasta kosningasigri Samfylkingarinnar 2003; hlaut 31 prósent atkvæða og 20 þingmenn.
„… þar sem Kalli sat í reykfylltu bakherbergi, í orðsins fyllstu merkingu, og hélt utan um alla þræði. Á stöðufundum í þeirri kompu skipti litlu hvort maður hélt á sígarettu eða ekki – allir önduðu að sér ómældu magni af Viceroy.“
Karl fæddist 8. október 1963 en andaðist 16. september 2026. Hann lætur eftir sig þrjú börn og barnabörn.