Nettó hefur slegist í hóp þeirra verslana sem ætla að lækka verð á vörum til áramóta til að lækka verðbólguna. Hagar hafa lækkað verð á hátt í 1.000 vörum í Bónus og Hagkaup um 2%. Fram kemur í tilkynningu að Nettó hefur einnig lækkað verð um 2,2% á 1.100 vörum í öllum verslunum sínum og frystir verð á þeim til áramóta. Verðlækkunin nær til fjölmargra vörumerkja, þar á meðal Änglamark, Iceland, Xtra, Coop, Dagab, Eldorado, Santa Maria, Maku, Systema, Home og allra vara sem eru merktar Nettó.
Nettó lækkar líka verð á vörum