Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að leikskólinn Sunnuás í Langholtshverfi verði rifinn og að nýtt stærra hús verði byggt á lóðinni. Leikskólinn verður eftir breytingu tíu deilda í stað níu. Leikskólahúsið hefur staðið autt í fjögur ár.
Starfsemi skólans var um tíma í gamla Morgunblaðshúsinu í Kringlunni en hefur verið í bráðabirgðahúsnæði á lóðinni síðustu þrjú ár.
Tvær athugasemdir bárust um breytingu á deiliskipulagi skólans. Þær sneru meðal annars að aðkomu að leikskólanum og fjölda bílastæða. Bráðabirgðahúsnæði leikskólans er sagt hafa valdið umferðaröngþveiti í kringum leikskólann og gagnrýnt að bílum væri lagt í göturými og jafnvel inni á lóðum nágranna skólans.
Í svari skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar eru deiliskipulagsbreytingarnar sagðar gerðar til þess að geta byggt upp á ný á lóðinni „með varanlegri lausn fyrir leikskólann og til að geta endurheimt bílastæði á lóð sem eru nú með tímabundinni lausn“.
Bílastæði í göturými í nágrenni leikskólans á meðan húsið er í notkun hafi verið tímabundin lausn. Þónokkuð sé af bílastæðum nærri leikskólanum við Laugarásveg, Langholtsveg og Dyngjuveg. Þá segir í svarinu að þegar nýr leikskóli verði tilbúinn þá endurheimtist bílastæði, meðal annars við Langholtsveg.
Gert sé ráð fyrir að bílastæði við leikskólann verði 34-38. „Bílastæðaþörf ætti því að jafnaði að vera leyst innan lóðar leikskólans og ekki er gert ráð fyrir að starfsemi nýti sér bílastæðin í göturými eftir að nýr leikskóli tekur til starfa og tímabundin bygging hverfur frá,“ segir í svari skipulagsfulltrúa.
Breyting á deiliskipulagi lóðarinnar var tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs og samþykkt í liðinni viku, og vísað til borgarráðs.
Borgarstjórnarfundur er í dag.