Þegar stjórnmálamenn og fjölmiðlar ganga berserksgang í Þýskalandi og búa til og elta meint hneyksli, vitna þarlendir gjarnan í skörunginn Konrad Adenauer kanslara, sem sagði að þessi æsingur myndi ganga yfir, því á morgun kæmi annað svín sem myndi hlaupa í gegnum þorpið. Þessa líkingu nota þýskir stundum til að minna fólk á að anda djúpt og láta ekki plata sig til að þramma með í leikinn, því svona uppþot væru gjarnan notuð til að búa til vesen og flóðbylgju vandlætingar til að draga athygli frá öðru.
Guðmundur Einarsson skrifar: Allir í skessuleik