Þetta kemur fram í ársskýrslu Matvælastofnunar (MAST) og Embættis landlæknis. Þar var sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería hjá mönnum og dýrum á Íslandi kannað.
Heildarsala sýklalyfja fyrir dýr jókst um 21,4 prósent frá fyrra ári. Aukningin er sögð skýrast meðal annars af áframhaldandi sýklalyfjameðferð vegna kýlaveikibróðurs í landeldi á bleikju.
„Sýklalyfjanotkun vegna kýlaveikibróðurs í bleikjueldi hefur nú verið viðvarandi um nokkurra ára skeið og á áfram stóran þátt í heildarsölu sýklalyfja hjá dýrum á Íslandi. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast áfram með þróun sýklalyfjanotkunar hjá einstökum dýrategundum og stuðla að ábyrgri og markvissri notkun sýklalyfja,“ segir í tilkynningu á vef MAST um skýrsluna.
Sala sýklalyfja til annarra dýrategunda jókst þó einnig.
„Önnur mikilvæg niðurstaða ársins var að búfjártengdur meticillínónæmur Staphylococcus aureus (MÓSA) greindist í fyrsta sinn við skipulega skimun í íslenskum svínum. Bakterían fannst í fjórum nátengdum svínabúum. Búfjártengdur MÓSA er vel þekktur í svínarækt í Evrópu en hafði ekki áður greinst í íslenskum svínum og sýnir mikilvægi skimunar,“ segir í tilkynningunni.
Heildarsala sýklalyfja til manna dróst saman um 4,6 prósent milli ára. Árið 2025 voru skilgreindir dagskammtar á hverja þúsund íbúa 18,6 á dag.
„Sýklalyfjaónæmi er enn almennt lítið á Íslandi í evrópskum samanburði, en þróun ákveðinna gerða ónæmis veldur áhyggjum. Árið 2025 greindust 22 einstaklingar með karbapenemasa-myndandi Enterobacterales (CPE), fleiri en nokkru sinni áður á einu ári,“ segir í tilkynningunni.