Öllum ráðningarsamningum þjálfara hjá Fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði var sagt upp í gærkvöldi.
Ástæðan er sögð vera slæm fjárhagsstaða félagsins.
Hilmar Ingimundarson, framkvæmdastjóri Bjarkar, sendi tilkynningu á foreldra allra iðkenda félagsins í gærkvöldi. Þar segir hann að félagið sé í viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um rekstrar- og þjónustusamning en nauðsynlegt sé að aðlaga reksturinn að núverandi stöðu.
Því hafi öllum þjálfurum verið sagt upp störfum.
Þjálfarar boðaðir á fund með klukkustundar fyrirvara
Þjálfarar félagsins voru boðaðir til fundar í gærkvöldi með klukkustundar fyrirvara. Á fundinum var þeim tilkynnt um uppsagnirnar og að fjárhagsleg staða félagsins væri slæm.
Núverandi ráðningarsamningar gilda til áramóta.
Félagið fagnaði 75 ára afmæli í byrjun júlí.