Matvælastofnun lýsir áhyggjum af fjölgun greininga á sýklalyfjaónæmum bakteríum á síðasta ári. Svokallaðar CPE-bakteríur (karbapenemasa-myndandi Enterobacterales), sem eru sýklalyfjaónæmar, greindust hjá 22 einstaklingum á síðasta ári – fleiri en nokkru sinni fyrr. Þetta sýna niðurstöður ársskýrslu MAST.
Heildarsala sýklalyfja dróst hins vegar saman um 4,6% milli 2024 og 2025 og MAST segir sýklalyfjaónæmi almennt vera lítið á Íslandi í evrópskum samanburði.
Ein helsta heilbrigðisógnin
Sýklalyfjaónæmi er ein helsta heilbrigðisógn sem heimurinn stendur frammi fyrir og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lýst áhyggjum af þróuninni.
Íslensk stjórnvöld hófu í fyrra undirbúnings- og uppbyggingarvinnu til að innleiða aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi. Í ársskýrslu um framkvæmd áætlunarinnar í sumar kom fram að framgangur verkefna væri almennt hægari en gert hefði verið ráð fyrir.
Helstu áskoranir væru fjármögnun verkefna, takmarkaður mannafli og óvissa um áframhaldandi fjármögnun. Þá hefði umfang undirbúningsvinnu í sumum tilvikum reynst meira en gert hefði verið ráð fyrir.