Í tilkynningu frá Georgi kemur fram að hann eigi nærri því fjörutíu ára starf í verkalýðs- og kjaramálum að baki. Hann var kjörinn formaður Iðnnemasambands Íslands árið 1987 og setið ASÍ-þing reglulega frá árinu 2003. Hann hefur átt sæti í miðstjórn sambandsins og verið þingforseti síðustu tveggja þinga.
GRAFÍA tilheyrir Rafinðaðarsambandi Íslands, einu svonefndra fagfélaga. Georg segir í tilkynningu sinni að mikilvægustu sigrar verkalýðshreyfingarinnar hafi unnist þegar launafólk stóð saman. Nú þurfi sambandið bæði að sækja fram sem ein heild og verja áunnin réttindi.
Fertugasta og sjöunda þing ASÍ verður haldið daga 14.-16. október. Finnbjörn A. Hermannsson, fyrrverandi formaður Byggiðnar, hefur verið forseti sambandsins frá árinu 2023.
Áður hefur Arnaldur Grétarsson, samfélagsmiðla- og markaðssérfræðingur, boðað framboð sitt til forseta ASÍ.