Annar frambjóðandinn til embættis forseta Alþýðusambands Íslands hefur stigið fram. Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, tilkynnti í dag um framboð sitt.
Áður hafði Arnaldur Grétarsson, samfélagsmiðlasérfræðingur hjá ASÍ, lýst yfir framboði.
Georg var kosinn formaður Iðnnemasambands Íslands 1987, hefur reglulega setið þing sambandsins frá 2003, átt sæti í miðstjórn sambandsins og verið þingforseti síðustu tveggja þinga.
„Ég gef kost á mér til forseta með þá reynslu að leiðarljósi sem ég hef öðlast í áratuga starfi fyrir launafólk, í kjarasamningum, félagsstarfi og forystu innan verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Georg í framboðstilkynningu sinni.
Hann segist leggja sérstaka áherslu á samstöðu innan Alþýðusambandsins og segir að samtökin verði bæði að sækja fram sem ein heild og verja þau réttindi sem hafi áunnist í gegnum tíðina.