Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður telur að málsókn vegna hljóðbútar í laginu „Miklu betri en einn“ eigi ekki við rök að styðjast. Fyrirtaka í skaðabótamáli gegn Elvari Orra Palash Arnarssyni tónlistarmanni er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Stefnandi er Kinga Malgorzata Reimus.Málið snýst um hljóðbút í upphafi lagsins sem er tekinn úr myndbandi þar sem stelpur heyrast rífast. Þar heyrist sagt:„Heldurðu að ég viti ekki hvernig þetta er, eða? Ég veit líka hvernig þetta er. Ég hélt framhjá Elvari. Og ég sagði strax honum, strax!“
Vilhjálmur telur málssóknina ekki eiga við rök að styðjast