Selma Soffía og Axel Björn, matreiðslumaður og eigandi Umami Sushi, hafa verið par í áraraðir og eru dugleg að deila myndum hvor af öðru á samfélagsmiðlum.
Rétt í þessu birti Selma Soffía sjálfu af þeim turtildúfum þar sem hún skartar nýja hringnum og hún skrifar að flugið til Barcelona hafi verið algjörlega einstakt.
„Þetta var auðveldasta já lífs míns og ég get ekki beðið eftir öllu lífinu með þér við hlið, enda bókstaflega draumamaðurinn sem ég manifestaði.“