Arfur, eignaréttur og verðleikar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Svo á að heita að eignarétturinn sé varinn í stjórnarskránni. Ekki þegar kemur að arfi. Ríkið leggur tíu prósent erfðafjárskatt á eignir og lausafé. Um er að ræða tvísköttun. Sá sem aflaði eignanna greiddi af þeim skatta og skyldur. Við fráfall eiganda innheimtir ríkið tíu prósent er arfurinn tæmist lögerfingjum, maki þó undanskilinn.
Miðflokkurinn hefur lagt til afnám erfðafjárskatts og nokkur umræða skapast, sjá t.d. grein Gunnars Ármannssonar lögmanns.
Á mælikvarða sanngirni er erfðafjárskattur óréttlátur. Tvísköttun er óréttlát samkvæmt skilgreiningu.
Verjendur erfðafjárskatts tefla fram tvíþættum rökum. Einum siðferðilegum og öðrum hagpólitískum.
Siðferðilegu rökin eru þau að erfingjar, oftast börn arfgjafa, hafa ekkert gert til að verðskulda arfinn. Áreiðanlega eru sum börn verðug arfsins, hafa til dæmis hlúð að foreldrum sínum um árabil, ef ekki áratugi. Á meðan önnur ættu í raun ekki skilið að fá krónu með gati. Ef um er að ræða fjölskyldurekstur hafa sum börn verið foreldrum hjálparhella en önnur ekki. Mannlífið spyr ekki um verðleika þegar auður verður til. Ekki frekar en þegar forgengileg verðmæti tapast. Tilviljun eða heppni ræður oft hvernig æxlast með veraldlegan auð, þótt atorka, áræðni og ráðdeild komi einnig við sögu.
Þeir sem halda fram verðleikarökum í andstöðunni við afnám erfðafjárskatts ættu að krefjast eignaupptöku ríkisins á dánarbúum þar sem erfingjarnir hafi ekkert gert til að verðskulda arfinn – annað en að fæðast. Hvers vegna ættu erfingjar að fá 90% arfshlutfall hafandi ekkert gert til að vinna sér inn arfsrétt? Litlu vinstrimennirnir þora ekki að koma út úr skápnum sem fullveðja kommúnistar. Þeir fela sig á bakvið tíu prósentin. Heldur aumlegt fíkjublað fyrir óverjandi rök.
Hagpólitísku rökin fyrir erfðafjárskatti eru þau að ríkið þurfi skattfé til að fjármagna óseðjandi millifærslukerfi. En með sömu rökum má setja 80 prósent tekjuskatt á línuna og 100 prósent virðisaukaskatt.
Erfðafjárskattur er eignaupptaka sem ætti að afnema.
(Tilfallandi á ekki von á arfi og vonast til að verða ekki arfgjafi í bráð).