Georgios Ntentes, sem er 31 árs gamall, hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að hann var handtekinn öðru sinni 10. desember. Hann neitar að hafa ráðið Edilsson Martins Zingara, portúgölskum karlmanni á fimmtugsaldri, bana að Skjólbraut í Kópavogi 28. nóvember í fyrra.
Í ákæru á hendur Ntentes segir að hann hafi stungið Zingara þremur stungum í kviðinn með hníf, skorið hann og stungið nokkrum sinnum með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann eða þrýst á framanverðan hálsinn. Zingara hafi látist af umfangsmiklu blóðtapi.
Fjórar einkaréttarkröfur eru jafnframt gerðar á hendur Ntentes. Þrjár þeirra eru fyrir hönd barna Zingara sem eru á aldrinum sex til sextán ára.