Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Bjarkar vill að Hafnarfjarðarbær gæti sanngirni í styrkveitingum til íþróttafélaga í bænum. Öllum þjálfurum félagsins, eldri en 18 ára, var sagt upp störfum í gær.
80 þjálfarar starfa hjá félaginu sem launþegar, í 30 stöðugildum og iðkendur eru um 1.100 í þremur deildum.
Hjá félaginu er starfrækt fimleikadeild, taekwondo-deild og klifurdeild.
Félagið hefur ekki fengið uppfærðan rekstrarsamning við Hafnarfjarðarbæ og fjárhagsstaðan er orðin íþyngjandi, segir Hilmar Ingimundarson, framkvæmdastjóri Bjarkar.
Öllum þjálfurum félagsins, eldri en 18 ára, var sagt upp störfum í gær.
Hilmar vill að sanngirni og samræmis sé gætt í samningum Hafnarfjarðarbæjar við íþróttafélög í bænum. Það sé dýrt að halda úti fimleikastarfi, launakostnaður hafi aukist og öll aðföng hafi hækkað í verði.
Hafa lengi kallað eftir bættum samningi við Hafnarfjarðarbæ
Hilmar segir það félagið það eina í Hafnarfjarðarbæ sem er með launþegasamninga við þjálfara sína. Af þeim sökum hafi verið nauðsynlegt að segja öllum þjálfurum upp störfum í gær til að tryggja þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Hann segir að í viðræðum félagsins við bæinn hafi verið bent á rekstrarsamninga sem Hafnarfjarðarbæ er með við önnur íþróttafélög bæjarins.
Eruð þið að fá hlutfallslega minna á hvern iðkanda en önnur íþróttafélög í Hafnarfirði?
„Já. Ég vil meina það og maður sér það bara klárlega á rekstrarsamningum annarra félaga og í ársreikningum að þá er krónutalan sem við erum að fá í fimleikafélaginu Björk töluvert minni en önnur félög hafa verið að sjá.“
Hilmar segir að tekjur félagsins, æfingagjöld og styrkir, beri ekki upp kostnaðinn við rekstur þess. Þá sé ekki annað í stöðunni en að skera niður.
Hann segir næstu vikur fara í að endurskipuleggja starfið og gera fjárhagsáætlun næsta árs. Meðal þess sem verður skoðað er hvort að ráðningarsamningum við þjálfara verði breytt í verktakasamninga.
Kostnaðarsamt að halda úti afreksstarfi í fimleikum
Fimleikafélagið Björk fagnaði 75 ára afmæli í sumar. Hilmar segir að starf félagsins verði ekki lagt niður en það sé spurning með hversu miklu afreksstarfi sé hægt að halda úti.
„Okkur hefur gengið vel og við erum með marga iðkendur í efsta þrepi fimleika, í landsliðum og annað. Það kostar meira en á yngsta stiginu.“
Hann segist ekki hafa áhyggjur af rekstri grunnstarfs félagsins en málið nú snúist um að geta rekið félagið í heild sinni.
Eins og staðan sé núna hafi félagið ekki áhöld fyrir iðkendafjölda.
Segir skort á samræmi og sanngirni milli íþróttafélaga bæjarins
Hilmar segir að húsnæði Bjarkar sé um 2.500 fermetrar. Til samanburðar sé húsnæði undir fótbolta hjá tveimur íþróttafélögum í bænum um 30 þúsund fermetrar.
„Við höfum talað fyrir daufum eyrum. Það hefur verið þrotlaus vinna að fá áheyrn Hafnarfjarðarbæjar.“
Hilmar segir það hlutfallslega dýrara að æfa fimleika en fótbolta. Meira en helmingur stelpna, sem eru búsettar í Hafnarfirði og á aldrinum 6-9 ára, æfa hjá félaginu.
Rekstrarsamningur bæjarins við Björk hefur ekki verið uppfærður frá 2017 að sögn Hilmis. Hækkanir hafi eingöngu verið í samræmi við vísitöluhækkanir.
Samningur félagsins við Hafnarfjarðarbæ rann út um síðustu áramót en hafði þar áður verið framlengdur um eitt ár.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar tekur málefni félagsins fyrir á fundi síðdegis og foreldrar iðkenda verða boðaðir til fundar í kvöld.
Hefurðu áhyggjur af framtíð félagsins?
„Að sjálfsögðu hefur maður alltaf áhyggjur. Það verður starf í fimleikafélaginu út veturinn og á komandi vetrum. En í hvaða formi verður það og hvaða afreksstarf getum við boðið upp á. “