Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur staðfest synjun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar á umsókn húsfélags í 10 hæða fjölbýlishúsi við Álalind um leyfi til að koma fyrir svalalokunum, á öllum svölum á 1.-9. hæð. Er umsókninni hafnað með vísan til ákvæða deiliskipulags en það breytti engu þótt að veitt hefði verið leyfi til að koma fyrir svalalokunum á öðrum fjölbýlishúsum í götunni, þrátt fyrir deiliskipulagið.
Fá ekki að setja eina einustu svalalokun á 10 hæða blokk í Kópavogi - Önnur hús í götunni fengu þveröfuga meðhöndlun