Hlutfall kvenna á höfuðborgarsvæðinu sem sýna einkenni fæðingarþunglyndis meira en tvöfaldaðist á ellefu ára tímabili.
Árið 2013 sýndu 8% kvenna einkenni fæðingarþunglyndis en árið 2024 var hlutfallið komið í 17%. Það jafngildir 9 prósentustiga aukningu, eða 112,5% hlutfallslegri aukningu.
Skimað er fyrir fæðingarþunglyndi hjá mæðrum í ungbarnavernd heilsugæslu.
Samkvæmt Lýðheilsuvísum landlæknis hefur notkun þunglyndislyfja aldrei verið meiri en í fyrra.
Skimað fyrir einkennum þunglyndis í mæðra- og ungbarnaeftirliti
Andleg vanlíðan á meðgöngu og eftir fæðingu getur haft margvísleg áhrif á móður, barn og fjölskyldu.
Í mæðra- og ungbarnavernd heilsugæslu er lögð sérstök áhersla á að skima fyrir þunglyndi og kvíða á meðgöngu, í fyrstu heimavitjun og í níu vikna skoðun barns.
Samkvæmt upplýsingum frá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu hefur hlutfall mæðra sem mælast með 12 stig eða hærra á Edinborgarkvarðanum hækkað úr 8% árið 2013 í 17% árið 2024.
Þær konur sem fá meira en tólf stig í skimun fá forgang fyrir þjónustu hjá sálfræðingum á heilsugæslustöðvum.
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sem sinna mæðrum á meðgöngu og eftir fæðingu spyrja út í andlega líðan.
Spurt er hvort andleg líðan hafi breyst, hvort mæðrum finnist þær vera kvíðnar eða áhyggjufullar og hver fjölskyldusagan er vegna þunglyndis og kvíða.
Matslistar, á borð við EPDS, eru sendir rafrænt í gegnum Heilsuveru og hafa verið þýddir á nokkur tungumál.
Mál Lindsey Clancy hefur vakið umræður um geðheilbrigði mæðra
Lindsay Clancy er ljósmóðir frá Duxbury í Massachusetts. Hún og eiginmaður hennar, Patrick Clancy, eignuðust þrjú börn: Coru, 5 ára, Dawson, 3 ára, og Callan, 8 mánaða.
Lindsay er ákærð fyrir að ráða börnunum bana á heimili þeirra.
Clancy-málið hefur vakið mikla athygli um allan heim og milljónir fylgdust með réttarhöldunum í beinni útsendingu.
Málið hefur ekki aðeins vakið spurningar um sekt eða sakleysi Clancy heldur umræðu um geðheilbrigðisþjónustu nýbakaðra mæðra í Bandaríkjunum og hvort heilbrigðiskerfið hafi mögulega brugðist henni.
Foreldrar, vinir og systkini Lindsay lýstu því fyrir dómi að hún hafi sagt þeim frá sjálfsvígshugsunum, svefnleysi, kvíða og ótta um að hún gæti skaðað börnin. Hún hafði leitað sér hjálpar og fengið fjölmörg geðlyf, frá ótal læknum.
Í umræðum um málið hefur verið kallað eftir betri þjálfun lækna í að meta líðan mæðra eftir fæðingu svo og betra aðgengi að þjónustunni sjálfri, en það getur verið ójafnt eftir samfélagslegri stöðu.
Móðir sem varð ungum syni sínum að bana í Kópavogi 2023 var þjökuð af alvarlegu þunglyndi. Þrír dómkvaddir matsmenn komust að þeirri niðurstöðu að konan hefði verið alvarlega þunglynd en ekki haldin geðveiki í skilningi hegningarlaga.
Hún var dæmd í 18 ára fangelsi.
Afar fátítt er að foreldri sem myrðir eigið barn sé metið sakhæft og oftar en ekki hafa andleg veikindi átt þátt að máli.
Fá forgang í sálfræðiþjónustu
Þær mæður sem mælast með 12 stig eða hærra í EPDS-skimun fá forgang fyrir þjónustu hjá sálfræðingum heilsugæslunnar.
Meðferð og eftirfylgni er einstaklingsmiðuð og konur eru upplýstar um hvaða úrræði þeim standa til boða.
Aukning hefur orðið á þeim úrræðum sem eru til staðar í takt við aukið hlutfall kvenna sem þurfa á aðstoð að halda, segir í skriflegu svari frá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.