Lindsay Clancy, sem er ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn sín, kom í dómsal í dag í fyrsta sinn frá því dómari lýsti réttarhöld yfir henni ógild fyrr í þessum mánuði. Enn er óljóst hvort saksóknarar fari fram á ný réttarhöld.
Saksóknarar og verjendur komu fyrir dómara í dag og búist var við því að framhald málsins myndi jafnvel skýrast. Þinghald stóð yfir í um klukkutíma og ákvað dómari að fresta því fram í nóvember.
Verjandi Clancy, Kevin Reddington, fer fram á að málinu verði vísað frá. Dómari ætlar að taka það fyrir 2. nóvember.
Saksóknari hefur heimild til að leggja málið aftur fyrir dóm. Það þýddi ný réttarhöld, nýjan kviðdóm, allar vitnaleiðslur væru endurteknar og aftur reynt að komast að niðurstöðu.
Saksóknarar í máli Clancy staðfestu ekki hvort farið yrði fram á ný réttarhöld. Þrátt fyrir það reyndi dómari að fá fram mögulega dagsetningu á nýjum réttarhöldum. Hvorki saksóknarar né verjendur vildu verða við því.
Næstu skref í málinu skýrast því líklegast 2. nóvember.
En Reddington reyndi í dag að færa rök fyrir því að dómari ætti að sýkna Clancy. „Hvar eru sönnunargögnin,“ spurði hann og barði hnefanum ítrekað í borðið. Saksóknarar telja sig hins vegar hafa sýnt fram á sekt hennar.
Clancy var ákærð fyrir að hafa myrt börnin sín þrjú, Coru, fimm ára, Dawson, þriggja ára, og Callan, sem var átta mánaða, á heimili fjölskyldunnar í janúar 2023.
Fyrri réttarhöldin hófust í júlí og verjandi Clancy, Kevin Reddington, byggði vörnina á því að hún hefði verið ósakhæf á verknaðarstundu sökum fæðingarsturlunar.
Ellefu af tólf kviðdómendum töldu ákæruvaldið ekki hafa sannað mál sitt svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa og vildu sýkna á grundvelli ósakhæfis á verknaðarstundu, en einn var á móti.
Dómari lýsti réttarhöldin ógild þar sem kviðdómur komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu.
Hafði ítrekað leitað sér hjálpar
Clancy hafði ítrekað leitað sér hjálpar vegna geðrænna veikinda. Eftir að yngsta barn hennar fæddist í maí 2022 breyttist hegðun hennar. Hún fékk mikinn kvíða, átti erfitt með svefn, var hrædd við að vera ein og talaði um að eitthvað alvarlegt amaði að sér.
Hún var meðal annars í meðferð á sjúkrahúsi þar sem hún var greind með alvarlegt þunglyndi án einkenna um geðrof. Á fimm mánaða tímabili leitaði hún til ótal lækna sem skrifuðu upp á meira en 30 lyfseðla og 13 mismunandi geðlyf.
Fæðingarþunglyndi er talið hrjá eina af hverjum sjö konum í Bandaríkjunum. Einkennin eru meðal annars þunglyndi, kvíði og jafnvel sjálfsvígshugsanir.
Fæðingarsturlun er mun sjaldgæfara ástand sem getur komið fyrir hjá einni til tveimur af hverjum þúsund konum eftir fæðingu. Oft byrja þau veikindi skyndilega, jafnvel innan tveggja til þriggja sólarhringa frá fæðingu, en geta komið fram síðar.
Einkenni fæðingarsturlunar eru til dæmis hegðunartruflanir, þunglyndi, ranghugmyndir og jafnvel ofskynjanir.
Málið er því óvenjulegt og fyrir utan sakamálið sjálft hefur umræðan ekki síst snúist um bandaríska heilbrigðiskerfið og af hverju hún fékk ekki þá hjálp sem hún leitaði eftir.
Fyrrverandi eiginmaður hennar, Patrick Clancy, kom fram í sextíu mínútum á CBS-sjónvarpsstöðinni í síðustu viku. Hann sagðist hafa fyrirgefið Lindsay og vera fullviss um að andlegum veikindum og fæðingarsturlun sé um að kenna.