Æfingagjöld geta numið yfir hálfri milljón króna á ári fyrir börn sem iðka knattspyrnu og körfubolta eftir að frístundastyrkir sveitarfélags hafa verið nýttir. Fimleikagjöld fyrir 6 til 7 ára börn á mánuði kosta rúmlega 21 þúsund krónur hjá Björk í Hafnarfirði en tæplega fjögur þúsund krónur hjá Völsungi á Húsavík.
Munar 17 þúsund á hæsta og lægsta verði á mánuði
Þessar upplýsingar koma fram í verðsamanburði ASÍ og eru aðgengilegar á heimasíðu bandalagsins. Ný samantekt á fimleikagjöldum sýnir að kostnaður getur verið mikill þótt barn stundi aðeins eina íþrótt og samantektin leiðir í ljós mikinn verðmun á fimleikaiðkun fyrstu bekkinga. Lægsta mánaðargjaldið er hjá Völsungi, 3.750 krónur, en hæsta hjá Björk, 21.064 krónur. Munurinn á hæsta og lægsta gjaldinu er því rúmlega 17 þúsund krónur á mánuði.
Kostnaður foreldra mjög mismunandi
ASÍ tekur þó fram að rétt sé að hafa í huga að gjöldin ein og sér segi ekki endilega alla söguna, til dæmis geti fjöldi æfinga, gæði og lengd þeirra verið mismunandi milli félaga. Flest félögin eru með mánaðargjöld á bilinu 10 til 15 þúsund krónur, Fjölnir er með 20.324 krónur á mánuði og svo Björk, eins og áður segir, með rúmlega 21 þúsund krónur. Samanburðurinn leiðir því í ljós að kostnaður foreldra vegna fimleikaiðkunar fyrstu bekkinga getur verið mjög mismunandi eftir félögum.