Ljósmóðirin Johanna tók á móti báðum börnunum og var greint frá gleðinni á Instagram-síðu kvennadeildar háskólasjúkrahússins. Í umfjöllun finnska ríkisútvarpsins (YLE) eru talin upp tvö önnur svipuð dæmi um tvíburasystur sem fæddu sama dag.
Tvíburarnir Rachel Schmidtberger og Lindsey Denny frá Texas gerðu einmitt það á síðasta ári, samkvæmt frétt frá bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC News, á meðan eineggja tvíburarnir Nicole og Renee Baillee í Ástralíu fæddu börn með örfárra mínútna millibili á sömu fæðingardeildinni í Queensland árið 2024.