Hluta þeirra tæplega níutíu starfsmanna sem var sagt upp störfum hjá Reykjavíkurborg í júní og ágúst hefur verið boðið að koma aftur til starfa.
Formaður Sameykis segir ljóst að meirihlutinn hafi farið of geyst í uppsagnir.
Illa gengur að fá rökstuðninga, sem Sameyki óskaði eftir, vegna fjölda uppsagna.
Skortur á samráði kemur í bakið á meirihlutanum núna
Við uppsagnirnar bæði í júní og í ágúst var starfsfólki tilkynnt að ekki stæði til að ráða það aftur til starfa, segir Kári Sigurðsson formaður Sameykis.
Hann segir að nú hafi hluta starfsfólksins verið boðnar tímabundnar stöður og sumum breytt launaumhverfi.
Að mati Kára er ljóst að meirihluti borgarstjórnar hafi áttað sig á að uppsagnirnar hafi verið of umfangsmiklar.
„Og það er okkar mat og það er mat starfsfólks borgarinnar að það hafi vantað allverulega upp á samráðið við fólkið á gólfinu í þessum breytingum. Og það sé að koma í bakið á meirihlutanum núna.“
Kári segist fagna því að fólk fái vinnuna sína aftur en hann vonar að borgarstjórnin læri af þeim mistökum sem gerð voru í uppsögnunum í sumar.
Hann segir að þar sem borgarstjórn hafi talað um að skipulagsbreytingunum sé ekki lokið voni hann að hér eftir verði haft samráð við bæði starfsfólk og stéttarfélög.
Gengur hræðilega að fá rökstuðning fyrir uppsögnum
Sameyki óskaði eftir rökstuðningi borgarstjórnar vegna uppsagna bæði í júní og í ágúst. Hann segir að miðað við hve vel meirihlutinn talaði um skipulag og undirbúning uppsagnanna hefði átt að vera auðsótt að fá þá rökstuðninga.
Hvernig gengur að fá þá rökstuðninga?
„Það gengur bara vægast sagt hræðilega. Þetta er búið að vera mjög vont ferli. Við í raun og veru, varðandi fyrstu uppsagnirnar í lok júní, kölluðum við eftir rökstuðningi 8.júlí. Og við höfum ekki enn fengið svör frá skrifstofu borgarstjóra varðandi þær uppsagnir.“
Kári segir að varðandi uppsagnirnar í ágúst hafi Sameyki loks fengið staðfestingu á dögunum um að skrifstofa borgarstjóra muni svara beiðnum um rökstuðning í næstu viku.
Að mati Kára er öllum ljóst að umrót sé innan borgarstjórnar og svo verði áfram á meðan borgarstjóri talar með þeim hætti sem hún gerir varðandi skipulagsbreytingar.
Hann segir stöðuna reyna mjög á starfsfólk borgarinnar.