Tvö tilboð bárust í nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 km kafla yfir Djúpa- og Gufufjörð á Vestfjörðum.
Innifalið í verkinu er bygging 210 metra langrar og 25 metra hárrar netbogabrúar yfir Djúpafjörð með steyptu gólfi.
Áætlaður verktakakostnaður var rúmir 2,4 milljarðar króna og verklok ráðgerð 1. október 2028.
Tilboð voru opnuð í dag. Ístak bauð tæpa sex milljarða í verkið og ÞG verktakar buðu tæpa 3,9 milljarða.
30 ára aðdragandi
Þessi framkvæmd á sér um 30 ára aðdraganda. Brúin mun stytta veginn milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um 21,6 kílómetra og er síðasti áfangi lagningar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit á sunnanverðum Vestfjörðum.
Verkið hefur tafist töluvert frá því að framkvæmdir hófust árið 2020. Áætlað var að þeim lyki 2024 og síðan 2026. Fyrr á árinu var áætluðum verklokum enn frestað.