Um 80 þjálfarar starfa hjá Fimleikafélaginu Björk og iðkendur eru um 1100. Slæm fjárhagsstaða er sögð ástæða þess að grípa þurfti til uppsagna. Rekstrarumhverfi félagsins hefur verið erfitt um nokkurt skeið. Félagið var rekið með tæplega 23 milljón króna tapi 2023, fjögurra milljóna króna tapi árið 2024 og tæplega 17 milljóna króna tapi 2025.
Forráðamenn félagsins hafa kvartað yfir ósanngirni í styrkveitingum bæjarins, samanborið við Hauka og FH. Sömuleiðis hafa laun hækkað hraðar en æfingagjöld. Samkvæmt nýrri könnun ASÍ rukkar Björk hæstu æfingagjöld allra fimleikafélaga á landinu.
Málið var rætt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag.
„Björk fær ámóta samninga og íþróttafélög í bænum, þjónustusamninga. Þeir eru reyndar allir til endurskoðunar og það er áætlað að þeirri vinnu ljúki nú um áramót. Ef það er einhver misbrestur á því kemur það í ljós í þeirri vinnu. Við höfum verið að veita Björkunum fyrirgreiðslu og alls konar aðstöðu. Fyrr í sumar buðum við þeim rekstraraðstoð eða rekstrarráðgjöf,“ segir Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði.