Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Árásin átti sér stað í fjölbýlishúsi í Kópavogi í gærkvöld. Maðurinn var handtekinn á vettvangi og farið verður fram á gæsluvarðhald yfir honum síðar í dag.
Í tilkynningunni segir að frekari upplýsingar um málið verði ekki veittar að svo stöddu.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Samkvæmt heimildum fréttastofu átti árásin sér stað í fjölbýlishúsi við Engihjalla. DV fjallaði í dag um handtöku í götunni. Þar var birt myndband af vettvangi þar sem maður sést leiddur út úr fjölbýlishúsi af tveimur lögreglumönnum. Svo sést þegar tvær manneskjur eru bornar út á sjúkrabörum.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.