Hjartadeildin hafði nýlega verið gerð upp og var því kjörinn staður til að prófa nýja kerfið sem heitir Qumea. Á deildinni er jafnframt mikið flæði sjúklinga og byltur, þegar sjúklingur dettur, voru frekar algengt vandamál. Gjarnan þurfti að kalla út fólk til að sitja yfir sjúklingum.
Það er þannig á sjúkrahúsum alls staðar í heiminum að byltur eru algengustu atvik sem eiga sér stað á spítalanum. Þetta kerfi hjálpar okkur að fækka byltum, segir Bylgja Kærnested forstöðuhjúkrunarfræðingur.
Kerfið virkar þannig að skynjari í loftinu nemur hreyfingar sjúklings, eða hreyfingarleysi, og hægt er að stilla hann eftir hverjum og einum. Það kemur svo í hlut hvers hjúkrunarfræðings að meta hverjir eru byltuhættu og þar af leiðandi að nota kerfið. Starfsfólk fylgist með vöktuðu rúmunum á skjám og í smáforriti í vinnusímum.
Við erum ekki með nein persónuleg gögn í þessu kerfi. Þannig eftir á vitum við bara á hvaða stofu þessi viðkomandi sjúklingur var. Það er ekki nafn og ekki kennitala og ekki neitt. Og svo eyðast gögnin. Svo það er ekki hægt að rekja þetta eitt eða neitt og okkur finnst það skipta mjög miklu máli, segir Brynja.
Á Grensásdeild er verið að prófa sambærilega lausn og þá er einnig verið að nota kerfið á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum úti á landi.