Engin sprengiefni fundust í bílum fimmmenninga sem voru handteknir nálægt nærri Fairford-herflugvellinum í Bretlandi. Breskir fjölmiðlar greina frá þessu.
Ítarleg rannsókn á ökutækjum
Mennirnir, sem voru handteknir á sunnudag vegna gruns um undirbúning hryðjuverka og fyrir brot á lögum um sprengiefni eru allir breskir ríkisborgarar frá Lundúnum, á aldrinum 20-25. Þeim var sleppt gegn tryggingu í gær.
Rannsókn lögreglu á málinu er í fullum gangi en samkvæmt henni fóru lögreglumenn í ítarlega rannsókn á ökutækjunum með aðstoð sérhæfðs búnaðar úr fórum hersins og réttarmeinafræðinga.
Lögregla greindi ekki frá því hvað kom út úr rannsókninni en breska dagblaðið The Times, og nokkrir aðrir fjölmiðlar, hafa sagt að engar vísbendingar hafi verið um sprengiefni í bílunum.
Mikið fjaðrafok út af engu
AFP-fréttaveitan hefur eftir Patriciu, íbúa í þorpinu Kempsford í nágrenni við flugvöllinn, að sér þætti vandræðalegt að fólk um allan hafi talið að þetta væri hryðjuverkaárás þegar í ljós hafi komið að svo var ekki. „Þetta var mikið fjaðrafok út af engu.“
Yfirmaður hryðjuverkadeildar lögreglunnar, Laurence Taylor, sagði mennina enn undir rannsókn þó að þeim hafi verið sleppt úr haldi. Hann sagði lögreglumenn rannsaka málið frá öllum hliðum. Meðal annars væri til rannsóknar hvort fulltrúar erlendra ríkja væru á bak við atvikið.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gærkvöldi að erlendur aðili sé augljóslega viðriðinn málið. Þetta sagði hann í viðtali á Fox-sjónvarpsstöðinni.
„Ég þarf að tala varlega, það eru hlutir sem ég má ekki segja opinberlega og það eru margar mismunandi ástæður fyrir því. Það nægir að segja að það sem gerðist, það sem gerðist næstum því og það sem hefði getað gerst í Bretlandi um helgina er afar alvarlegt mál. Það er ljóst að erlendur aðili kom að því,“ sagði Rubio en veitti ekki frekari skýringar.