Breska dómsmálaráðuneytið hefur áfrýjað úrskurði þar sem það er krafið um að birta tölur sem sýna hversu margir hafa verið sakfelldir fyrir mismunandi brot, sundurliðað eftir þjóðerni. Nigel Farage tók málið upp í þætti sínum á GB News og las þar upp röksemd ráðuneytisins fyrir því að neita þessari beiðni, en hún var á þá leið að hagsmunir, grundvallarréttindi og frelsi þeirra sem tölurnar varða vegi þyngra en hagsmunir almennings af því að upplýsingarnar verði birtar.
„Hvað eru þau að fela?“ spurði Farage. Hann sagði almenning eiga rétt á að sjá tölur um brot fólks sem komið hefur til Bretlands.
Fór fram á að fámennir hópar yrðu faldir
Robert Bates, hjá samtökunum Centre for Migration Control, óskaði eftir tölum fyrir árin 2018 til 2024. Beiðnin náði meðal annars til sakfellinga fyrir ofbeldisbrot, kynferðisbrot, fíkniefnabrot og vopnalagabrot. Hann fór fram á að tölur í brotaflokkum þar sem fjöldinn væri undir fimm yrðu faldar svo ekki væri hægt að þekkja einstaklinga af niðurstöðunum.
Dómsmálaráðuneytið hafnaði beiðninni. Ráðuneytið hélt því einnig fram að vinnan við að taka tölurnar saman færi fram úr kostnaðarmörkum upplýsingalaga.
Breska upplýsingamálaeftirlitið (ICO) úrskurðaði í júní að ráðuneytið yrði að afhenda tölurnar, að undanskildum tölum undir fimm í hverjum flokki. Ráðuneytið áfrýjaði úrskurðinum í júlí og tölurnar hafa því enn ekki verið birtar með þeirri sundurliðun sem óskað var eftir. Ráðuneytið hafnar því að um yfirhylmingu sé að ræða.