Evrópa er á ný undir þrýstingi úr tveimur áttum. Að austan reynir Rússland að veikja samstöðu álfunnar. Að vestan hafa áhrifamikil stjórnmála- og auðmagnsöfl í Bandaríkjunum tekið að styðja evrópska flokka sem vilja draga úr vægi sameiginlegra stofnana hennar. Aðferðirnar og markmiðin eru ekki þau sömu, en möguleg niðurstaða er svipuð, sundruð, veikari og áhrifaminni Evrópa.
Gunnlaugur B. Hjartarson skrifar: Hvað gerði Evrópa rangt?