Tveggja ára gamalt mál hefur komist í hámæli í Bandaríkjunum eftir að saksóknarar í New York ákváðu að taka það upp að nýju. Sjö karlkyns nemendur við Cornell-háskóla eru sakaðir um hópnauðgun og lögmaður konunnar segir skólann hafa boðið þeim mildari refsingu gegn ritgerðarskrifum.
Konan, sem er kölluð Jane Doe í bandarískum miðlum, kýs að koma ekki fram undir nafni. Fyrr í þessum mánuði höfðaði hún einkamál gegn Cornell, bræðrafélagi í skólanum og sjö þáverandi nemendum og meðlimum í bræðrafélaginu.
Mildari refsing gegn ritgerðarskrifum
Frásögn konunnar er mjög óhugnanleg. Án þess að fara út í smáatriði þá segist hún hafa verið drukkin, farið í húsakynni bræðrafélagsins og þar hafi verið þrýst á hana að taka sterk eiturlyf og henni hópnauðgað klukkustundum saman.
Hún tilkynnti málið til lögreglunnar á háskólasvæðinu, en háskólar í Bandaríkjunum eru margir með sína eigin lögreglumenn í vinnu, og þá varð niðurstaðan – samkvæmt lögmanni konunnar – að tveir voru reknir úr skólanum en öðrum hafi boðist að skrifa ritgerðir til að milda refsinguna og þannig aðeins vikið úr skólanum tímabundið.
Upprunalega rannsóknin hefur verið gagnrýnd en þá var enginn handtekinn eða ákærður. Saksóknari sem fór með málið þá segir að þá hafi framburður konunnar verið annar en nú. Þá hafi hún ekki sagt sér hafa verið byrlað né hópnauðgað.
Skjáskot af hópspjalli bræðrafélagsins
Thomas Giuffra, lögmaður konunnar, segir að það hafi tekið hana langan tíma að jafna sig og í rauninni meðtaka og átta sig á því sem hafi gerst. Þess vegna sé hún ekki að leggja fram kæru fyrr en núna.
Það hafa líka komið fram ný gögn í málinu. Þau eru skjáskot af skilaboðum í hópspjalli bræðrafélagsins þar sem mennirnir virðast ræða meint kynferðisofbeldi og bjóða fleirum að koma og taka þátt.
Cornell segist styðja endurupptöku málsins en að fullyrðingar um að þungum viðurlögum hafi ekki verið beitt séu rangar. Málið hefur enn og aftur vakið umræðu um nauðgunarmenningu í háskólum í Bandaríkjunum.
Skólablaðið The Cornell Daily Sun hefur fjallað um það að nemendur vilji meira gagnsæi í svona málum og að lítið sem ekkert hafi verið upplýst um það á sínum tíma.
Aðrir skólar hafi þá reglu að þegar kynferðisafbrotamál komi upp sé upplýst um ferlið og niðurstöðu mála án þess að birta nöfn þeirra sem eigi hlut að máli.