Gagnrýni Elds Smára Kristinssonar á frumvarp um bann við bælingarmeðferðum rataði inn í þingumræður á Norður-Írlandi í gærkvöld. Peter Martin þingmaður las upp úr umsögn Elds og spurði Gordon Lyons ráðherra hvort hann deildi áhyggjum hans. Ráðherrann svaraði játandi. Frumvarpið komst þó áfram eftir atkvæðagreiðslu í þinginu.
Frumvarpið á að gera tilteknar tilraunir til að breyta eða bæla kynhneigð eða kynvitund refsiverðar. Eldur Smári, sem barðist einnig gegn íslensku lögunum um bælingarmeðferðir árið 2023, vill að norðurírska frumvarpið verði dregið með öllu til baka.
„Það á að draga það til baka“
Martin sagði þinginu að nefnd sem fjallar um málið hefði, samkvæmt hans upplýsingum, fengið umsögn Elds. Hann las síðan upp þá afstöðu að ekki ætti að reyna að breyta frumvarpinu í „ásættanlega“ útgáfu, heldur draga það til baka.
Í umsögninni segir Eldur að ofbeldi og nauðung af því tagi sem frumvarpið eigi að stöðva séu þegar refsiverð. Hann gagnrýnir sérstaklega að hugtakið „kynvitund“ sé að hans mati ekki skilgreint nægilega skýrt til að byggja á því refsilög.
Martin spurði Lyons hvort hann tæki undir viðvörun Elds og íslenskra samtaka samkynhneigðra. Ráðherrann sagðist sammála og sagði reynsluna frá Íslandi verðmæta við mat á frumvarpinu.
Flutningsmaður frumvarpsins, Eóin Tennyson, hélt því hins vegar fram í lok umræðunnar að það væri nauðsynlegt til að vernda fólk gegn skaða og nauðung. Þingið samþykkti að færa málið áfram í nefnd með 46 atkvæðum gegn 29.
Umsögn Elds:



