Systir portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu á Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra segir að ákærði í málinu hafi skuldað honum pening.
Þetta kom fram við aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Georgios Ntentes frá Grikklandi er gefið að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.
Hann gaf skýrslu fyrir dómi við upphaf aðalmeðferðar í morgun. Eftir hádegi var rætt við systur hins látna, móður hans og kærustu.
Systir hans og kærasta komu að honum látnum á heimili hans um hádegi 30. nóvember. Systir hans vissi að Georgios hefði ætlað að heimsækja hann 28. nóvember og segir það hafa verið því hann ætlaði að greiða vikugamla skuld upp á rúmar 100 þúsund krónur, að því er hún taldi.
Í skýrslutöku yfir ákærða bar hann fyrir sig að blóð sem fannst úr honum á vettvangi hafi verið vegna þess að hann var með sár á höndum vegna vinnu sinnar sem kokkur. Hann hafi verið að hjálpa hinum látna að gera upp eldhúsið í íbúðinni og sárin getað opnast við það og blóðið hefði getað hafa verið þarna í einhverja daga eða vikur.
Kærastan sagði ákærða hafa skuldað hinum látna pening
Kærasta hins látna gaf einnig skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð. Hún kvaðst hafa vitað að ákærði hefði skuldað honum pening en að fleiri, sem hún vissi ekki deili á, hefðu einnig skuldað honum pening.
Hún og hinn látni höfðu verið að rífast þá viku og ætluðu að slíta sambandi sínu. Hún, systir hins látna og móðir hans, sem einnig gaf skýrslu, staðfestu að hann hefði verið í talsverðu uppnámi vegna þessa.
Hefði þrifið blóð af veggjum strax
Systir og kærasta hins látna komu báðar reglulega í heimsókn til hans og sögðust ekki hafa orðið varar við blóð á veggjum eða annars staðar í íbúðinni. Þegar saksóknari spurði systur hins látna og kærustu hans hvort hinn látni hefði verið snyrtilegur og myndi þrífa blóðkám undir eins svöruðu þær því játandi.
Systir hins látna og kærasta kváðust hvorugar hafa vitað hvort hann væri að selja kókaín en vissu að hann hefði notað það.
Systir hans sagðist vita af því að bróðir hennar hefði í eitt skipti unnið skemmdir á bifreið annars manns í félagi við ákærða vegna fíkniefnaskuldar þriðja mannsins. Sá hafi svo hefnt sín með því að brjóta rúðu í bíl hins látna í október.