Forsætisráðherra Eistlands, Kristen Michal, sakaði rússnesku leyniþjónustuna í dag um að bera ábyrgð á tilraun til íkveikju í vopnaframleiðslufyrirtæki í Tallinn um miðjan ágúst. Í fyrirtækinu, Milrem Robotics, eru framleiddir róbótar sem Úkraínumenn nýta á vígvellinum í baráttu sinni gegn innrásarher Rússlands.
Þrír Lettar, sem hafa búið í Rússlandi, voru handteknir í Lettlandi, grunaðir um aðild að málinu. Þeir voru framseldir til Eistlands á dögunum.
Rússnesk stjórnvöld hafa verið sökuð um slíkar árásir undanfarið á bandamenn Úkraínu, þar á meðal tilraun til drónaárásar á flugvöll í Leipzig í Þýskalandi þar sem úkraínskar flutningaflugvélar voru.
Yfirmaður öryggisþjónustu Eistlands, Margo Palloson, sagði við fjölmiðla í dag að leyniþjónustustofnanir í Rússlandi beini athygli sinni í auknum mæli að fyrirtækjum tengdum öryggis- og varnarmálum í Eistlandi og víðar í Evrópu.
Þá sagði forsætisráðherra Eistlands að stjórnvöld voni að Evrópuríki beiti Rússa enn harðari refsiaðgerðum svo þeir geti ekki unnið spellvirki sem þessi. Þau geti til dæmis takmarkað enn frekar orkukaup af Rússlandi, þá ætti skuggafloti Rússa ekki að fá að sigla um höfin, né ættu rússneskir hermenn að fá að ferðast til Evrópuríkja.
Talsmaður ESB í utanríkismálum, Christian Wigand, sagði Rússa beita ýmsum aðferðum gegn Evrópuríkjum, svo sem brotum á lofthelgi, skemmdarverkum, netárásum og njósnum. „Stjórnvöld í Moskvu reyna að hræða Evrópu frá því að styðja Úkraínu en það á ekki eftir að takast,“ sagði hann í dag.
Dmitry Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda, hafnaði þessum ásökunum í dag.