JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur tjáð sig um óvenjulegan svefntíma Donald Trump forseta. Forsetinn vakir oft á næturnar en á erfitt með að halda sér vakandi á daginn og sofnar á óviðeigandi tímum. Bent hefur verið á að þetta séu ummerki um heilabilun.Vance tjáði sig um svefn Trump í hlaðvarpinu All In. Vance sagði að Trump væri oft vakandi langt fram yfir miðnætti og stundum fram á morgun. Eigi hann það til að hringja í ráðherra á ókristilegum tímum.
JD Vance tjáir sig um óreglulegan svefn Trump – Sofnar í tíma og ótíma