Fjöldi minningargreina birtist í dag í Morgunblaðinu en sömuleiðis hefur flóð minningarorða fallið á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að andlátsfregn var birt. Karl fæddist þann 8. október 1963 en andaðist 16. september 2026. Hann lætur eftir sig þrjú börn og barnabörn.
Meðal þeirra sem voru viðstaddir útförina var Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis en í grein sem hún skrifaði þar sem hún minnist Kalla sagði meðal annars:
„Kalli var sérvitur og sjarmerandi, hrifnæmur og viðkvæmur. Hann reyndi auðvitað að fela það á bak við brynju kúlsins en tókst það sjaldnast. Fíknin markaði líf hans djúpum sporum og síðasta áratuginn stjórnaði hún ferðinni. Hann missti föður sinn á unglingsaldri og frásögn hans af þeim missi nístir inn að beini. Kalli var miðbæjarrotta sem leitaði reglulega í heimahagana austur á fjörðum. Bjó um tíma á Stöðvarfirði og ritstýrði góðu héraðsblaði.“
Ljósmyndari Vísis var við Hallgrímskirkju og hér fyrir neðan má líta á myndir frá því þegar kista Karls var borin út úr kirkjunni af fjölskyldu og ástvinum hans.