„Þetta er skelfilegt, alveg hreint, skelfilegt. Þetta ætlar engan endi að taka, sko, einhvern veginn,“ segir Þórdís Hreggviðsdóttir um hækkun verðbólgu. Verðbólga jókst fjórða mánuðinn í röð og stendur nú í 5,9%.
Fréttastofa tók vegfarendur tali í Bónus í Skeifunni.
„Mér finnst þetta alls ekki gott fyrir heimilin og alls ekki gott,“ segir Laufey Vilmundardóttir.
Hvað myndirðu vilja sjá gerast í því? „Bara eitthvað almennilegt fyrir fólkið í landinu, það er varla hægt að búa hér lengur,“ svarar hún.
„Mér finnst að stjórnvöld eigi að stíga svolítið fastar inn í og gera eitthvað,“ segir Þórdís.
Fréttastofa hitti Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, þar sem hún var á fundi með fulltrúum frá fagfélögunum og Landssambandi íslenskra verslunarmanna um gildandi kjarasamninga.
„Auðvitað hefur það áhrif að verðbólga haldi áfram að stíga þegar við erum að reyna að ræða um leiðir til að vinda ofan af henni,“ segir Halla.
„Eins og staðan er núna hafa sveitarfélögin stigið fram og sagst vera tilbúin að taka slaginn, einhver fyrirtæki hafa líka gert það. Við höfum verið að senda þeim bréf og þau hafa brugðist við. Ríkisstjórnin vaklar svolítið og SA skilar auðu,“ bætir hún við.
Klukkan tifar því eftir níu daga rennur fresturinn út til að segja kjarasamningunum upp. Heimild til þess opnaðist í mánuðinum þar sem verðbólga er meiri en stefnt var að við undirritun þeirra.
„Við höfum þungar áhyggjur, við höfum ekki fengið neitt frá SA sem gefur okkur tilefni til að telja að við getum látið þennan kjarasamning halda, þannig að það eru ekki miklar líkur á að hann geri það,“ segir Halla.
Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, segir hækkun verðbólgu ekki skemma viðræðurnar um gildandi kjarasamninga því hækkunin hafi verið viðbúin.
„Við erum að vinna að yfirlýsingu sem kæmi þá út þegar við tökum ákvörðun um hvort við framlengjum samningana eða ekki. Það er þríhliða samkomulag milli ríkisstjórnar, Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins,“ segir Finnbjörn.
Fjármálaráðherra sagði við fréttastofu í dag að ríkisstjórnin hefði skilað inn tillögum sem sneru að rétti launþega gagnvart vinnuveitendum sínum og húsnæðismarkaði þar sem vilji væri til að auka framboð á hóflega verðlögðu húsnæði og örva byggingamarkaðinn.
Hljómar eins og það sé búið að ná einhverju samkomulagi?
„Nei, við erum komin þangað að það kemur ekki mikið meira inn í þá yfirlýsingu. Síðan á hópurinn eftir hjá mér að taka ákvörðun um hvort þetta dugi til eða ekki, við erum ekki komin svo langt. Það mun örugglega klárast í þessari eða næstu viku,“ segir Finnbjörn.