Lögmönnum er ekki skylt að veita skattayfirvöldum upplýsingar um umbjóðendur sína sem þegið hafa skattráðgjöf, ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn og meðalhóf krefjast. Þetta er niðurstaða EFTA-dómstólsins í dag. Í niðurstöðum dómsins segir að 36. gr. EES-samningsins girði fyrir að lögmönnum sé skylt að veita slíkar upplýsingar.
Dómsmálið má rekja til máls sem er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar krafðist Skatturinn þess að lögmannsstofa afhenti skrá yfir alla umbjóðendur sína sem þegið hafa skattráðgjöf eða aðra þjónustu á árunum 2019 til 2024.
Í tilkynningu frá Lögmannafélagi Íslands segir að félagið taki undir forsendur dómsins. Jafnframt vænti félagið þess að dómurinn brýni fyrir stjórnvöldum, jafnt skattyfirvöldum sem öðrum, mikilvægi þess að virða grundvallarhlutverk lögmanna í lýðræðissamfélagi. Það sé að halda uppi vörnum fyrir aðila dómsmála.
Í forsendum dómsins segir að það grundvallarhlutverk sé háð því að allir geti haft samráð við lögmann sem veiti óháða lögfræðiráðgjöf og skyldu lögmannsins til að vinna af heilindum í þágu umbjóðandans.
Þá segir í dómnum að vernd samskipta lögmanna og umbjóðenda nái ekki aðeins til málsvarnar heldur einnig til lögfræðiráðgjafar.
„Einstaklingar sem leita til lögmanns mega með réttu vænta þess að samskipti þeirra séu einkamál og að trúnaður ríki um þau. Það er því einungis í sérstökum undantekningartilvikum, að víkja má frá réttmætum væntingum þeirra um að lögmaður muni ekki, án þeirra samþykkis, upplýsa neinn um að þeir hafi leitað til hans eða hennar,“ segir í dómnum.