Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á alvarlegri líkamsárás í íbúð fjölbýlishúss við Engihjalla í Kópavogi í gærkvöld.
Í tilkynningu segir að maðurinn, sem var handtekinn á vettvangi, sé grunaður um að hafa veist að konu á fertugsaldri sem var í íbúðinni. Konan var flutt á slysadeild með alvarlega áverka en lögregla gaf ekki frekari upplýsingar um líðan hennar.
Nágranni mannsins segist hafa orðið var við handtökuna í gærkvöld og segir talsverðan viðbúnað hafa verið við húsið. Maðurinn sé rúmlega fertugur Íslendingur sem búi einn í íbúðinni. Nágranninn telur konuna, sem var borin út á sjúkrabörum, vera kærustu mannsins.