Málið er til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar.
Mbl.is greinir frá. Lögregla bíði nú eftir því að fá læknisvottorð um áverka konunnar. E. Agnes Eide Kristjánsdóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði að tengslin milli mannsins og konunnar væru enn óljós.
Maðurinn var handtekinn á vettvangi en samkvæmt heimildum fréttastofu átti árásin sér stað í fjölbýlishúsi við Engihjalla.
Í umfjöllun Ríkisútvarpsins er haft eftir nágranna mannsins sem úrskurðaður var í varðhald að hann sé rúmlega fertugur Íslendingur og að hann telji konuna vera kærustu mannsins.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið.